Samþykkja 27.000 km² til Færeyja

Norðurlandaráðsþing 2019 | 30. október 2019

Samþykkja 27.000 km² til Færeyja

Á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í Stokkhólmi í dag mun Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ásamt kollegum sínum frá Noregi og Danmörku, auk utanríkisfulltrúa landsstjórnar Færeyinga, undirrita nýjan samning sem stækkar landgrunn Færeyja um 27 þúsund ferkílómetra í Ægisdjúpi (Síldarsmugunni), norður af eyjunum. Þetta staðfestir utanríkisráðuneytið.

Færeyjar stækka um 27.000 ferkílómetra samkvæmt samkomulaginu.
Færeyjar stækka um 27.000 ferkílómetra samkvæmt samkomulaginu. mbl.is/Björn Jóhann

Á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í Stokkhólmi í dag mun Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ásamt kollegum sínum frá Noregi og Danmörku, auk utanríkisfulltrúa landsstjórnar Færeyinga, undirrita nýjan samning sem stækkar landgrunn Færeyja um 27 þúsund ferkílómetra í Ægisdjúpi (Síldarsmugunni), norður af eyjunum. Þetta staðfestir utanríkisráðuneytið.

Á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna í Stokkhólmi í dag mun Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ásamt kollegum sínum frá Noregi og Danmörku, auk utanríkisfulltrúa landsstjórnar Færeyinga, undirrita nýjan samning sem stækkar landgrunn Færeyja um 27 þúsund ferkílómetra í Ægisdjúpi (Síldarsmugunni), norður af eyjunum. Þetta staðfestir utanríkisráðuneytið.

Samningurinn er niðurstaða margra ára viðræðna ríkjanna til þess að leysa andstæðar kröfur þeirra á Norður-Atlantshafi. Er samningurinn gerður á grundvelli alþjóðahafréttarsamningsins, en samkvæmt honum er ríkjum heimilt að gera tilkall til landgrunns utan 200 mílna lögsögu.

Samningur ríkjanna byggir á samkomulagi þeirra frá árinu 2006 þar sem landgrunninu var skipt upp og hlutu Íslendingar 29 þúsund ferkílómetra, Norðmenn 55 og Færeyingar 27. Landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur nú samþykkt körfur Íslands, Noregs og Færeyja.

Yfirráð yfir landgrunni hefur áhrif á nýtingarrétt á hafsbotni, til að mynda vegna olíu, gass eða námustarfsemi.

mbl.is