Meta það sem barni er fyrir bestu

Flóttafólk á Íslandi | 6. nóvember 2019

Meta það sem barni er fyrir bestu

UNICEF á Íslandi bendir stjórnvöldum á skyldu þeirra til að meta það sem barni er fyrir bestu þegar ákvarðanir eru teknar. Á þetta við um allar ákvarðanir, um öll börn, á öllum stjórnsýslustigum og við allar aðstæður.

Meta það sem barni er fyrir bestu

Flóttafólk á Íslandi | 6. nóvember 2019

Konan var flutt úr landi í gærmorgun en hún ber …
Konan var flutt úr landi í gærmorgun en hún ber barn undir belti. Ljósmynd/No Borders Iceland

UNICEF á Íslandi bendir stjórnvöldum á skyldu þeirra til að meta það sem barni er fyrir bestu þegar ákvarðanir eru teknar. Á þetta við um allar ákvarðanir, um öll börn, á öllum stjórnsýslustigum og við allar aðstæður.

UNICEF á Íslandi bendir stjórnvöldum á skyldu þeirra til að meta það sem barni er fyrir bestu þegar ákvarðanir eru teknar. Á þetta við um allar ákvarðanir, um öll börn, á öllum stjórnsýslustigum og við allar aðstæður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi vegna brottflutnings albanskrar fjölskyldu í gærmorgun.

Þar segir að brottflutningur vegna ákvarðana sem byggi á útlendingalögum feli í eðli sínu nauðung sem geti haft varanleg áhrif á líf og þroska barns, ef illa er staðið að málum.

UNICEF á Íslandi hvetur embætti Ríkislögreglustjóra til þess að endurskoða verklag við brottflutning fjölskyldna og fræða starfsfólk um réttindi barnsins. Starfsfólk UNICEF býður fram aðstoð við slíka fræðslu og samtal um framkvæmd laga og reglna er varða börn sem flutt eru nauðug úr landi.

Þá lýsir UNICEF yfir stuðningi við fyrirætlanir dómsmálaráðherra og landlæknis að kanna nánar fyrrnefndan brottflutning. UNICEF hefur áhyggjur af aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

„ Fyrr á árinu ræddi UNICEF við fjölda barna og foreldra sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi og kom skýrt fram að aðgengi að heilbrigðisþjónustu er skert og hefur það í einhverjum tilfellum leitt alvarlegs heilsubrests,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

UNICEF bendir á að lög, reglur og samningar, sem tryggja réttindi barna sem sækja um vernd, eru í gildi á Íslandi. Framkvæmd laganna þurfi hins vegar að bæta á öllum sviðum. með skýrum skilaboðum ríkisstjórnarinnar um að réttindi barna séu virt hér á landi.

mbl.is