Spænski óperusöngvarinn Placido Domingo, sem sakaður hefur verið um að hafa áreitt konur kynferðislega í áratugi, greindi frá því í morgun að hann tæki ekki þátt í menningaratburði tengdum Ólympíuleikunum í Tókýó á næsta ári. Vísar hann til flækjustiga í tengslum við verkefnið.

Í yfirlýsingu sem skipuleggjendur Ólympíuleikanna sendu frá sér minnist Domingo ekkert á ásakanir á hendur honum. Hann hefur áður neitað þeim.
Domingo lýsir atburðinum, sem átti að fara fram í apríl í Kabuki-óperunni, sem dásamlegum menningarviðburði þar sem tveir menningarheimar myndu sameinast á sviðinu í anda Ólympíuleikanna.
Domingo hefur áður sagt sig frá viðburðum sem búið var að skipuleggja. Má þar nefna Metropolitan-óperuna í New York og hjá Los Angeles-óperunni.
Tuttugu konur saka hann um að hafa kysst þær án leyfis, þuklað og snert þær án þeirra heimildar.