Áfram í haldi vegna almannahagsmuna

Heimilisofbeldi | 26. nóvember 2019

Áfram í haldi vegna almannahagsmuna

Maður sem er grunaður um heimilisofbeldi og kynferðisbrot var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 20. desember. Nú á grundvelli almannahagsmuna.

Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í morgun, að kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi, að maðurinn, sem sætt hefur gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna frá 19. nóvember sl. skuli sæta áframhaldandi gæslu allt til 20. desember nk. en nú á grundvelli almannahagsmuna.

Áfram er unnið að rannsókn þeirra brota sem hann er grunaður um og er ekki að vænta frekari upplýsinga um þá rannsókn frá lögreglu að sinni, að því er segir á Facebook-síðu lögreglunnar. 

mbl.is