Engin áform um að hætta við próf

Í Danmörku ræða menn hvort rétt sé að fella niður …
Í Danmörku ræða menn hvort rétt sé að fella niður stúdentspróf. Slíkt er ekki í umræðunni hér. mbl.is/Golli

Til umræðu er nú í Danmörku að fella niður komandi stúdentspróf vegna þess ástands sem skapast hefur í skólamálum í kjölfar útbreiðslu kórónuveiru. Er ástæða þess meðal annars sögð mikið álag á nemendur í fjarkennslu, einkum þá sem standa höllum fæti fyrir.

Kristinn Þorsteinsson, skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ og formaður Skólameistarafélags Íslands, segir engin áform um slíkt hér á landi. Allir framhaldsskólar geri ráð fyrir að ljúka önninni á hefðbundnum tíma með prófi eða mati á stöðu nemenda.

„Skólarnir eru mjög ólíkir, sumir eru með lítil sem engin próf á meðan aðrir eru með mikla prófahefð og þannig verður það áfram,“ segir hann og bætir við að skólastarf síðastliðnar vikur hafi „gengið vonum framar“.

„Það er vissulega mikið átak að taka hefðbundna kennslu og skella henni í dreifnám með afar skömmum fyrirvara. Menn voru misvel undir þetta búnir en allir tókust á við verkefnið í sameiningu. Fjölmargir skólar,...