Björguðu sveltandi flóttafólki

Rohingjar á flótta | 16. apríl 2020

Björguðu sveltandi flóttafólki

Strandgæsla Bangladess bjargaði 382 rohingj­um sem höfðu verið á reki í tæpa tvo mánuði. Flóttafólkið var að svelta í hel þegar því var bjargað en að sögn yfirvalda í Bangladess höfðu ekki allir lifað flóttann af því rúmlega tveir tugir voru látnir. Fólkið var að reyna að komast til Malasíu en hafði verið vísað þaðan vegna kórónuveirunnar.

Björguðu sveltandi flóttafólki

Rohingjar á flótta | 16. apríl 2020

AFP

Í frétt BBC kemur fram að ekki sé vitað hvort flóttafólkið var að koma frá Bangladess eða Búrma þaðan sem rohingjarnir eru. Árið 2017 drap herinn í Búrma þúsundir rohingja en þeir eru minnihlutahópur múslima í Búrma. Þetta varð til þess að um 700 þúsund rohingjar flúðu yfir til nágrannalandsins, Bangladess.

mbl.is