Hildur og Veronique tilnefndar

Hildur Guðnadóttir | 16. júní 2020

Hildur og Veronique tilnefndar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs

Tónskáldin Hildur Guðnadóttir og Veronique Vaka voru í dag tilnefndar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs fyrir hönd Íslands árið 2020. 

Hildur og Veronique tilnefndar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs

Hildur Guðnadóttir | 16. júní 2020

Veronique Vaka og Hildur Guðnadóttir.
Veronique Vaka og Hildur Guðnadóttir. Samsett mynd

Tónskáldin Hildur Guðnadóttir og Veronique Vaka voru í dag tilnefndar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs fyrir hönd Íslands árið 2020. 

Tónskáldin Hildur Guðnadóttir og Veronique Vaka voru í dag tilnefndar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs fyrir hönd Íslands árið 2020. 

Tilnefningarnar voru kynntar í beinu streymi frá Kaupmannahöfn og London í dag. Tólf verk eru tilnefnd fyrir listrænt gildi sitt. Á meðal tilnefninganna eru poppplötur, kvikmyndatónlist, sinfóníur og konsertar sem eiga rætur í tónlist frá þremur kynslóðum.

Kynnar voru breski blaðamaðurinn Andrew Mellor og tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir, fyrrum handhafi verðlaunanna, og í útsendingunni báru þau lof á hin tilnefndu, sem endurspegla breitt svið norrænnar tónlistar.

„Það hefur verið heiður að fá að kynna sér verkin sem tilnefnd eru til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Þau spanna allt frá poppplötum og kvikmyndatónlist til sinfóníuverka og konserta og eru unnin úr tónlist þriggja kynslóða. Það sem sameinar verkin tólf er tæknilegur agi og knýjandi þörf fyrir tjáningu í gegnum tónlist. Öll tólf verðskulda þau að fá víðtæka hlustun og við vonumst til að geta stuðlað að því með þessari útsendingu,“ segir Andrew Mellor tónlistarblaðamaður.

Handhafi tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2020 verður kynntur þann 27. október á verðlaunahátíð í Reykjavík í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Verðlaunahafinn hlýtur að launum verðlaunagripinn Norðurljós og 350 þúsund danskar krónur.

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 1965. Þeim er ætlað að vekja athygli á tónlistarsköpun og tónlistarflutningi sem telst hafa mikið listrænt gildi. Verðlaunin eru til skiptis veitt annars vegar núlifandi tónskáldi og hins vegar tónlistarhópi eða -flytjanda.Í ár renna verðlaunin til tónskálds.

mbl.is