„Við erum bara aðeins að melta þessar upplýsingar og átta okkur á því hverju þetta breytir. Við erum bara að reyna að finna út úr því hver okkar næstu skref verða,“ segir Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, um þá ákvörðun Íslenskrar erfðagreiningar að láta af skimun fyrir kórónuveirunni.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sendi í dag Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra bréf þar sem hann tilkynnti henni að þætti Íslenskrar erfðagreiningar í skimun á kórónuveirunni væri lokið eftir 13. júlí.
Kjartan segir að verið sé að fara yfir stöðu mála. Stórt verkefni sé fram undan.
„Það er erfitt að standa í svona vinnu án aðkomu Íslenskrar erfðagreiningar. Við höfum sagt það áður og það er ekkert breytt. Nú leggjumst við bara yfir þetta og reynum að skoða hvernig við getum tekist á við þessa breyttu mynd. Við erum bara að reyna að átta okkur á því hvað þetta þýðir. Við reynum að átta okkur á þessu og förum yfir þetta í rólegheitum en það er ljóst að þetta verður hörkuáskorun,“ segir Kjartan.
Hann segir leiðinlegt að samstarfið endi svona og ber Íslenskri erfðagreiningu vel söguna.
„Það samstarf sem við hjá landlækni og sóttvarnalækni höfum átt við Íslenska erfðagreiningu hefur verið algjörlega frábært. Að vinna með þessu flotta fólki hjá Kára hafa verið mikil forréttindi. Það er leiðinlegt að þetta fari svona en við þurfum bara að horfast í augu við það og bretta upp ermar. Það fer mikil vinna í hönd núna.“