Veitingastaðurinn sem fæstir vita af en þykir einn sá allra besti

Frá matarbloggurum | 26. júlí 2020

Veitingastaðurinn sem fæstir vita af en þykir einn sá allra besti

Það eru ekki allir með á hreinu hvar veitingastaðurinn Bjargarsteinn er og sjálfsagt á hann fleiri aðdáendur erlendis en hér á landi ef marka má ummælin um hann á TripAdvisor og öðrum síðum. Heyrst hefur af fólki sem hefur flogið gagngert til landsins til að heimsækja hann og skyldi engan undra.

Veitingastaðurinn sem fæstir vita af en þykir einn sá allra besti

Frá matarbloggurum | 26. júlí 2020

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Það eru ekki allir með á hreinu hvar veitingastaðurinn Bjargarsteinn er og sjálfsagt á hann fleiri aðdáendur erlendis en hér á landi ef marka má ummælin um hann á TripAdvisor og öðrum síðum. Heyrst hefur af fólki sem hefur flogið gagngert til landsins til að heimsækja hann og skyldi engan undra.

Það eru ekki allir með á hreinu hvar veitingastaðurinn Bjargarsteinn er og sjálfsagt á hann fleiri aðdáendur erlendis en hér á landi ef marka má ummælin um hann á TripAdvisor og öðrum síðum. Heyrst hefur af fólki sem hefur flogið gagngert til landsins til að heimsækja hann og skyldi engan undra.

Berglind Hreiðarsdóttir, matarbloggari og matreiðslubókahöfundur, brá sér á Bjargarstein á dögunum og hélt vart vatni af hrifningu:

„Ég veit ekki hvar ég á að byrja því veitingastaðurinn Bjargarsteinn á Grundarfirði er hreint út sagt dásamlegur staður. Saga hússins er ein sú krúttlegasta sem ég veit, maturinn upp á tíu, útsýnið ekki af verri endanum og frábærlega skemmtilegir þjónar!" segir Berglind.

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Gunni, eigandi Bjargarsteins, galdraði hvern dýrindis réttinn á fætur öðrum fram fyrir okkur. Við hjónin sátum ásamt stelpunum okkar heila kvöldstund að snæða svo það hlýtur að segja til um hversu góður maturinn var,“ bætir Berglind við.

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir



„Húsið sem veitingastaðurinn er rekinn í er gamalt íbúðarhús sem flutt var í heilu lagi á Grundarfjörð. Núverandi eigendur ráku augun í þetta hús til sölu á Akranesi, fundu fallega sjávarlóð á Grundarfirði og létu drauminn rætast. Hægt er lesa nánar um sögu hússins á heimasíðu Bjargarsteins.“

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Húsmunir og öll umgjörð á Bjargarsteini er einstök. Safnað hefur verið saman munum frá allri fjölskyldunni og setur það sannarlega sinn brag á húsnæðið. Á efri hæðinni er setustofa og virkilega kósí og heimilislegt að koma inn á þennan dásamlega veitingastað. Gæðin og matreiðslan leynir sér síðan ekki og greinilegt að mikið er lagt í það að töfra fram bragðgóðar og fallegar veitingar,“ segir Berglind og ef marka má myndirnar er engu logið.

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman