Brugghús lyftistöng fyrir lítil samfélög

Stöndum saman | 8. september 2020

Brugghúsin lyftistöng fyrir lítil samfélög

Forsvarsmenn Samtaka íslenskra handverksbrugghúsa afhentu Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra áskorun í dag um að hún leggi á ný fram frumvarp um að heimila íslenska netverslun með áfengi til jafns við erlenda. Jafnframt að tryggðir verði möguleikar handverksbrugghúsa til að selja gestum vörur sínar með beinum hætti á staðnum.

Brugghúsin lyftistöng fyrir lítil samfélög

Stöndum saman | 8. september 2020

Sigurður P. Snorrason, formaður Samtaka íslenskra handverksbrugghúsa, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir …
Sigurður P. Snorrason, formaður Samtaka íslenskra handverksbrugghúsa, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Laufey Sif Lárusdóttir, ritari samtakanna.

Forsvarsmenn Samtaka íslenskra handverksbrugghúsa afhentu Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra áskorun í dag um að hún leggi á ný fram frumvarp um að heimila íslenska netverslun með áfengi til jafns við erlenda. Jafnframt að tryggðir verði möguleikar handverksbrugghúsa til að selja gestum vörur sínar með beinum hætti á staðnum.

Forsvarsmenn Samtaka íslenskra handverksbrugghúsa afhentu Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra áskorun í dag um að hún leggi á ný fram frumvarp um að heimila íslenska netverslun með áfengi til jafns við erlenda. Jafnframt að tryggðir verði möguleikar handverksbrugghúsa til að selja gestum vörur sínar með beinum hætti á staðnum.

„Íslensk handverksbrugghús eru nú á þriðja tug talsins, tryggja um 200 manns störf í sinni heimabyggð og skila tugum milljóna í skatttekjur á ári,“ segir Sigurður P. Snorrason, formaður samtakanna. 

Hann bendir á að brugghúsin framleiði vandaðar og eftirsóttar íslenskar vörur og dragi til sín fjölda íslenskra og erlendra gesta. „Þannig eru brugghúsin oft mikil lyftistöng fyrir lítil samfélög í nærumhverfi sínu, sem mörg teljast til brothættra byggða,“ segir Sigurður.

Í tilkynningu frá samtökunum er haft eftir Sigurði að Covid-19-faraldurinn með tilheyrandi hruni í ferðaþjónustu hafi haft veruleg áhrif á mörg lítil frumkvöðlafyrirtæki í greininni. Þannig hafi gestafjöldi minnkað til muna og brugghúsin geti einungis keppt um mjög takmarkað hillupláss í áfengisverslunum ríkisins til að selja vörur sínar.

„Með heimild til sölu í netverslun og á framleiðslustað fengist varan nær framleiðslunni með verulega minnkuðu fótspori og á hagkvæmari hátt, með tilheyrandi jákvæðum áhrifum fyrir neytendur, umhverfið og afkomu brugghúsanna,“ segir Sigurður. 

Hjálpar atvinnulífi í brothættum byggðum

Hann segir ljóst að núverandi kerfi stuðli að óeðlilegri mismunun, enda geti erlendir aðilar óhindrað selt íslenskum neytendum áfengi í netverslun. „Ef íslenskir framleiðendur vilja gera slíkt hið sama þurfa þeir að flytja vörur sínar til útlanda, til þess eins að þær verði fluttar heim aftur af erlendri netverslun með tilheyrandi kolefnisspori.“

Sigurður bendir á að breytingarnar gætu ekki aðeins orðið til happs fyrir atvinnulíf í brothættum byggðum, heldur mætti samhliða lögfesta aukið aldurseftirlit og tryggja áframhaldandi skatttekjur sem nýst gætu í forvarnar- og lýðheilsustarf. 

„Í síðasta frumvarpi ráðherra var gert ráð fyrir leyfissviptingu og refsiábyrgð vegna ófullnægjandi aldurseftirlits. Við fögnum slíkum kröfum og bendum á að engin slík ákvæði gilda um erlendar netverslanir,“ segir Sigurður. 

Eina breytingin að dósin er lokuð

Hann staðhæfir að bein sala í handverksbrugghúsum muni á engan hátt auka aðgengi ungs fólks að áfengi. „Vörurnar yrðu einungis seldar á stöðum þar sem fólk á löglegum áfengiskaupaaldri má koma saman, rétt eins og gildir á vínveitingastöðum. Eina breytingin er sú að dósin er lokuð,“ segir Sigurður. 

Hann ítrekar mikilvægi þess að leggja áframhaldandi áherslu á forvarnir og lýðheilsu. „Slíku opinberu starfi má auðvitað sinna enn betur ef tekjur af sölu áfengis renna í auknum mæli í vasa íslenskra skattgreiðenda, frekar en erlendra fyrirtækja. Tillagan er því bæði í senn innblásin af hag frumkvöðlafyrirtækja og starfsmanna þeirra, en ekki síður sjónarmiðum um byggðastefnu og aukna áherslu á forvarnir og aldurseftirlit.“ 

mbl.is

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman