Sýningin Andlit var opnuð í Studio Rakel Tomas á dögunum en þar sýnir hún málverk. Á sömu sýningu er að finna skúlptúra Huldu Katarínu keramiklistakonu. Eins og sjá má á myndunum voru gestir sýningarinnar afar þakklátir fyrir að komast loksins út úr húsi og hitta mann og annan eftir miklar skemmtanatakmarkanir vegna kórónuveiru.

Rakel Tomas er myndlistarkona og vinnur með kvenlíkamann á súrrealískan hátt í verkum sínum. Hingað til hefur hún verið þekkt fyrir nákvæmar blýantsteikningar en á þessari sýningu notar hún einföld lifandi form og svart blek til að mynda mismunandi andlit.
Hulda Katarína er keramiklistakona sem nálgast viðfangsefni sín á opinn og frjálslegan hátt. Í verkum sínum leitast hún við að draga fram lífræn eða náttúruleg form með handmótun.
Hulda stundar nám við keramikbraut Myndlistaskóla Reykjavíkur.