Rósa Björk kveður Vinstri-græna

Flóttafólk á Íslandi | 17. september 2020

Rósa Björk kveður Vinstri-græna

Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur sagt sig úr þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og úr hreyfingunni.

Rósa Björk kveður Vinstri-græna

Flóttafólk á Íslandi | 17. september 2020

Rósa Björk Brynjólfsdóttir.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur sagt sig úr þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og úr hreyfingunni.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur sagt sig úr þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og úr hreyfingunni.

Þessu greinir hún frá í tilkynningu.

Þar segist hún hafa átt fund með Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG, og tilkynnt henni úrsögnina.

„Nýlegir atburðir er varða brottvísun stjórnvalda á barnafjölskyldu sem hefur beðið eftir lausn sinna mála í 25 mánuði og viðbrögð ríkisstjórnar sem VG er í forystu fyrir í því máli urðu til þess að ég finn endanlega að ég á ekki lengur samleið með þingflokki VG,“ skrifar hún og segir ákvörðunina ekki auðvelda, sér í lagi gagnvart kjósendum VG og félögum VG í Suðvesturkjördæmi.

„Ég þakka þeim kærlega fyrir stuðninginn, traustið og samfylgdina síðastliðin ár og vonast eftir því að þau sýni ákvörðun minni skilning. Ég mun þrátt fyrir þetta halda áfram að vinna af krafti og einurð að góðum málum á Alþingi, sérstaklega er varða mannréttindi, umhverfis- og loftslagsmál, kynjajafnrétti og fleiri góðum málum,“ bætir hún við. 

„Þetta mál er samt þess eðlis að það er ekki hægt annað en að taka afstöðu með mannúðinni, með réttindum barna á flótta sem hér hafa fest rætur og myndað tengsl. Og taka afstöðu gegn því að íslensk yfirvöld vísi á brott börnum og barnafjölskyldum. Á þeim þremur árum sem VG hefur setið í ríkisstjórn hefur lítið sem ekkert miðað í átt að móta hér nýja stefnu í málefnum innflytjenda og hælisleitenda eða að fylgja mannúðarsjónarmiðum í málaflokknum, sem er þó það sem ríkisstjórnin lofaði. Það er mjög miður.

Sem varaformaður flóttamannanefndar Evrópuráðsþingsins hef ég fengist mikið við málefni fólks á flótta og sérstaklega mála sem varða barna á flótta sem ég hef unnið ötullega að. Í því ljósi finnst mér þessi stefnubreyting og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar sérstaklega dapurleg og bera vitni um afstöðu sem er langt frá því sem afstaða VG í þessum málaflokki hefur verið hingað til og langt frá því sem við bárum fram bæði í stjórnarandstöðu og fyrir kosningar.

Ég óska fyrrum félögum mínum í VG góðs gengis.“

Uppfært kl 14:49: Þingflokkur Vinstri grænna hefur sent frá sér tilkynningu vegna málsins og er hún eftirfarandi: 

Rósa Björk Brynjólfsdóttir upplýsti þingflokk Vinstri grænna í dag um þá ákvörðun sína að segja sig úr þingflokknum. Rósa Björk hefur verið þingmaður VG frá 2016.

Þingflokkur VG þakkar Rósu Björk samstarfið undanfarin ár.

mbl.is