Tekur á móti sýrlenskum fjölskyldum frá Lesbos

Flóttafólk á Íslandi | 25. september 2020

Ísland tekur á móti sýrlenskum barnafjölskyldum frá Lesbos

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að Ísland taki á móti flóttafólki frá Lesbos á Grikklandi, með áherslu á sýrlenskar fjölskyldur í viðkvæmri stöðu. Fjölskyldurnar bjuggu áður í flóttamannabúðunum Moria sem eyðilögðust í eldsvoða fyrr í mánuðinum.

Ísland tekur á móti sýrlenskum barnafjölskyldum frá Lesbos

Flóttafólk á Íslandi | 25. september 2020

Börn í búðum sem voru settar upp tímabundið í Mytilene …
Börn í búðum sem voru settar upp tímabundið í Mytilene á grísku eyjunni Lesbos. AFP

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að Ísland taki á móti flóttafólki frá Lesbos á Grikklandi, með áherslu á sýrlenskar fjölskyldur í viðkvæmri stöðu. Fjölskyldurnar bjuggu áður í flóttamannabúðunum Moria sem eyðilögðust í eldsvoða fyrr í mánuðinum.

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að Ísland taki á móti flóttafólki frá Lesbos á Grikklandi, með áherslu á sýrlenskar fjölskyldur í viðkvæmri stöðu. Fjölskyldurnar bjuggu áður í flóttamannabúðunum Moria sem eyðilögðust í eldsvoða fyrr í mánuðinum.

Flóttafólkið frá Lesbos, sem verður allt að 15 manns, mun bætast í hóp þeirra 85 sem ríkisstjórnin hyggst taka á móti á þessu ári og er það langfjölmennasta móttaka flóttafólks á einu ári hingað til lands, að því er segir á vef Stjórnarráðsins. 

Þar segir, að flóttamannanefnd muni annast undirbúning á móttöku fjölskyldnanna og verði móttaka þeirra unnin í samvinnu við Evrópusambandið og grísk stjórnvöld. Evrópusambandið hafði áður sent frá sér ákall um nauðsyn á flutningi barna og barnafjölskyldna vegna bruna Moria flóttamannabúðanna. Þá mun Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna vera íslenskum stjórnvöldum innan handar varðandi það hvernig best verður staðið að því að koma fjölskyldunum til landsins, að því er segir í tilkynningunni.

Stefna ríkisstjórnarinnar að taka á móti fleira flóttafólki

„Við viljum bregðast við ákalli því sem borist hefur um að taka á móti fólki á flótta frá Lesbos. Hér á landi hefur skapast umfangsmikil og dýrmæt þekking þegar kemur að móttöku sýrlenskra fjölskyldna og sú reynsla okkar kemur að góðum notum. Það er stefna ríkisstjórnarinnar að taka á móti fleira flóttafólki í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sem lýst hefur ánægju með móttöku flóttafólks hér á landi,“ er haft eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. 

Flóttamannanefnd heyrir undir félags- og barnamálaráðherra en í nefndinni sitja fulltrúar frá dómsmálaráðuneytinu, félagsmálaráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu. Þá hafa Rauði krossinn á Íslandi, Samband íslenskra sveitarfélaga og Útlendingastofnun áheyrnarfulltrúa í nefndinni.

mbl.is