Leita til Persónuverndar vegna dróna Fiskistofu

Eftirlit með veiðum | 16. febrúar 2021

Leita til Persónuverndar vegna dróna Fiskistofu

„Við funduðum með Fiskistofu varðandi drónaeftirlit fyrir stuttu síðan. Við erum nú ekki par hressir með þetta,“ segir Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda (LS), um eftirlit Fiskistofu með smábátasjómönnum með dróna, í samtali við 200 mílur. 

Leita til Persónuverndar vegna dróna Fiskistofu

Eftirlit með veiðum | 16. febrúar 2021

Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda.
Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Við funduðum með Fiskistofu varðandi drónaeftirlit fyrir stuttu síðan. Við erum nú ekki par hressir með þetta,“ segir Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda (LS), um eftirlit Fiskistofu með smábátasjómönnum með dróna, í samtali við 200 mílur. 

„Við funduðum með Fiskistofu varðandi drónaeftirlit fyrir stuttu síðan. Við erum nú ekki par hressir með þetta,“ segir Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda (LS), um eftirlit Fiskistofu með smábátasjómönnum með dróna, í samtali við 200 mílur. 

Hann segir vanta verulega upp á að jafnræðis sé gætt og meðalhófsreglu beitt við notkun Fiskistofu á drónum, eða flygildum, til eftirlits með smábátasjómönnum.

„Mér er ekki kunnugt um að það sé verið að fljúga þessum apparötum yfir stóru skipunum. Þetta virðist eiga fyrst og fremst að sveima hérna með ströndinni og fylgjast með litlum bátum. Ef það er jafnræði í þessum málum þá er ég alveg hættur að skilja það orð,“ segir Arthur.

Fiski­stofa hef­ur notað dróna eða flygildi við eft­ir­lit með fisk­veiðum frá miðjum janú­ar og hef­ur með þeim hætti kom­ist upp um þó nokk­ur brot gegn lög­um um stjórn fisk­veiða á þess­um stutta tíma. Stofn­un­in ger­ir ráð fyr­ir að þessi eft­ir­litsaðferð verði hluti af reglu­legu eft­ir­liti sínu.

Munu leita til Persónuverndar

Arthur segir að LS muni leita til Persónuverndar vegna myndavélaeftirlitsins og hann hafi upplýst Fiskistofu um það.  

„Við teljum að þrátt fyrir allt þurfi að vera eitthvert traust á milli manna. Þegar menn hafa það á tilfinningunni að eitthvert opinbert eftirlitsauga sé hangandi yfir þeim þá er þetta komið aðeins of langt,“ segir Arthur og bætir við að fiskveiðieftirlitsmenn séu bæði á höfnum og oft í bátum. 

„Ég spurði Fiskistofu hvort þeir væru með myndband af broti þar sem stórt fiskiskip kemur við sögu, þeir eru ekki með það,“ segir Arthur. Hann telur ekki mögulegt að fylgjast með stórum fiskiskipum langt úti á hafi í alls konar veðrum með sama hætti og smábátum, nálægt landi í góðum veðrum. 

Löngum verið mótfallnir

Félagsmenn LS hafa löngum verið mótfallnir hugmyndum um myndavélaeftirlit. Á aðalfundi félagsins voru fjórar ályktanir um eftirlit samþykktar. Ein þeirra tekur á drónaeftirliti:

„Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda leggur til að drónaeftirlit með smábátum verði óheimilt nema með dómsúrskurði þar sem fyrir liggur rökstuddur grunur um alvarlegt brot.“

mbl.is