Sigmar sýknaður og Aldís að mestu leyti

Jón Baldvin Hannibalsson | 12. mars 2021

Sigmar sýknaður og Aldís að mestu leyti

Tvenn ummæli Aldísar Schram um föður sinn Jón Baldvin Hannibalsson í Morgunútvarpinu á Rás 2 frá 17. janúar 2019 og af Facebook voru dæmd ómerk í Héraðsdómi en átta önnur standa. Fjölmiðlamaðurinn Sigmar Guðmundsson var sýknaður af stefnu Jóns Baldvins þegar dómur var kveðinn upp í dag.

Sigmar sýknaður og Aldís að mestu leyti

Jón Baldvin Hannibalsson | 12. mars 2021

Jón Baldvin Hannibalsson ásamt lögmanni sínum, Vilhjálmi Vilhálmssyni, við aðalmeðferð …
Jón Baldvin Hannibalsson ásamt lögmanni sínum, Vilhjálmi Vilhálmssyni, við aðalmeðferð málsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tvenn ummæli Aldísar Schram um föður sinn Jón Baldvin Hannibalsson í Morgunútvarpinu á Rás 2 frá 17. janúar 2019 og af Facebook voru dæmd ómerk í Héraðsdómi en átta önnur standa. Fjölmiðlamaðurinn Sigmar Guðmundsson var sýknaður af stefnu Jóns Baldvins þegar dómur var kveðinn upp í dag.

Tvenn ummæli Aldísar Schram um föður sinn Jón Baldvin Hannibalsson í Morgunútvarpinu á Rás 2 frá 17. janúar 2019 og af Facebook voru dæmd ómerk í Héraðsdómi en átta önnur standa. Fjölmiðlamaðurinn Sigmar Guðmundsson var sýknaður af stefnu Jóns Baldvins þegar dómur var kveðinn upp í dag.

Jón Baldvin stefndi Aldísi dóttur sinni vegna ummæla hennar í Morgunútvarpinu á Rás 2 frá 17. janúar 2019. Hann gerði ekki fjárkröfur á hendur Aldísi en krafðist þess að ummælin, níu úr Morg­unút­varp­inu og ein af Face­book, yrðu dæmd dauð og ómerk.

Ummælin sem voru ómerkt voru eftirfarandi:

Fíkn, auðvitað er barnagirnd fíkn, þetta er fíkn og ... og sigra hann og hans barn­aníðinga­banda­lag.

Aldís Schram ásamt lögmanni sínum, Gunnari Inga Jóhannssyni.
Aldís Schram ásamt lögmanni sínum, Gunnari Inga Jóhannssyni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sigmari var stefnt fyr­ir fern um­mæli úr þætt­in­um 17. janú­ar en Jón Bald­vin krafði hann um 2,5 millj­ón­ir króna.

Önnur ummæli sem Jón Bald­vin fór fram á að dæmd yrðu dauð og ómerk voru eft­ir­far­andi:

Morg­unút­varp, Rás 2, 17. janú­ar 2019, um­mæli viðhöfð af Al­dísi:

  1. ... hann fær mig und­ir fölsku yf­ir­skini að heim­sækja afa minn ... mér var haldið inni þarna í mánuð sem sagt ólög­lega.
  2.  ... já. Fimm sinn­um á næstu 10 árum kast­ast í kekki milli mín og Jóns Bald­vins Hanni­bals­son­ar og því lyktaði ávalt með því að [sic] sigaði á mig lög­reglu sem hand­tók mig, hann er nátt­úru­lega ut­an­rík­is­ráðherra ...
  3. Hann gat bara þaðan í frá, þáver­andi ut­an­rík­is­ráðherra og síðar sendi­herra, virðist vera að hringja bara í lög­reglu og þá var ég þar með hand­tek­in, um­svifa­laust í járn­um, farið með mig upp á geðdeild ...
  4. ... hann er þá líka að mis­nota lít­il börn.
  5. ... ég neita að skilja þau eft­ir í um­sjón karls sem káf­ar á litl­um stúlku­börn­um.
  6.  Og sem sagt 10 mín­út­um eft­ir að ég kæri Jón Bald­vin þá hring­ir dyra­bjall­an. Þar rudd­ust þarna inn tveir lög­reglu­menn ef ekki þrír og ég, þegar ég sé það þá reyni ég að loka en auðvitað tókst mér það ekki, þeir ryðjast þá þar með inn og þeir svara mér engu, ryðjast inn í stofu þar sem dótt­ir mín 5 ára göm­ul er að lesa og þegar barnið er tekið frá mér þá verð ég æf.
  7. ... það er faðir minn sem stend­ur fyr­ir því að hér eigi að loka mig inni.
  8. ... nauðung­ar­vist­un án dóms og laga er þá ólög­mæt frels­is­svipt­ing ...

Rás 2, 17. janú­ar 2019, höf­und­ur og flytj­andi Sig­mar (Al­dís til vara):

  1. ... að Jón Bald­vin hafi notað aðstöðu sína sem sendi­herra til að láta nauðung­ar­vista hana á geðdeild.
  2. Sá fund­ur Al­dís­ar og Jóns Bald­vins seg­ir hún hafa reynst sér ör­laga­rík­ur og orðið til þess að hún var í fyrsta sinn nauðung­ar­vistuð á geðdeild.
  3. ... að Jón Bald­vin hafi sett sig í sam­band við fé­lags­mála­yf­ir­völd og geðdeild með það fyr­ir aug­um að fá hana nauðung­ar­vistaða í enn eitt skiptið.
  4. Þar seg­ir hún einnig að Jón Bald­vin hafi framið sifja­spell þegar hún var full­orðin kona.
mbl.is