Bólusetning kennara gegn Covid-19 hefst um næstu mánaðamót og starfsfólk leikskóla mun líklega ganga fyrir í þeim hópi.

Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna.
Ástæðuna sagði hann til að mynda þá að opið er í leikskólum á sumrin á meðan aðrir skólar fara í lengra sumarfrí.
Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, segir málefnaleg rök fyrir því að starfsfólki leikskóla verði forgangsraðað þegar kemur að áttunda hópi forgangsröðunar bólusetningar en í þeim hópi er starfsfólk leik-, grunn- og framhaldsskóla og tiltekið starfsfólk félags- og velferðarþjónustu.
Undir það tók Bergljót Jóhannsdóttir, leikskólastjóri Jörfa þar sem alls hafa 15 starfsmenn og sjö börn greinst smituð af Covid-19. Í leikskólanum eru tæplega 100 börn og þar starfa 33.