Beint: Ný skýrsla kjaratölfræðinefndar

Kjaraviðræður | 30. apríl 2021

Beint: Ný skýrsla kjaratölfræðinefndar

Í dag frá klukkan 10.00 til 10.45 kynnir kjaratölfræðinefnd aðra skýrslu sína. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst árið 2019 og stendur enn, þróun efnahagsmála og launa. 

Beint: Ný skýrsla kjaratölfræðinefndar

Kjaraviðræður | 30. apríl 2021

Meðal nýjunga í skýrslunni er samanburður á launaþróun karla og …
Meðal nýjunga í skýrslunni er samanburður á launaþróun karla og kvenna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í dag frá klukkan 10.00 til 10.45 kynnir kjaratölfræðinefnd aðra skýrslu sína. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst árið 2019 og stendur enn, þróun efnahagsmála og launa. 

Í dag frá klukkan 10.00 til 10.45 kynnir kjaratölfræðinefnd aðra skýrslu sína. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst árið 2019 og stendur enn, þróun efnahagsmála og launa. 

Kynningunni verður streymt beint hér að neðan.

Skýrslan skiptist í þrjá meginkafla sem fjalla um efnahagsmál, gerða kjarasamninga í yfirstandandi kjaralotu og mælingar Hagstofu Íslands á launaþróun. Hún verður gerð aðgengileg á ktn.is í dag.

Samanburður á launaþróun

Edda Rós Karlsdóttir, formaður nefndarinnar, kynnir skýrsluna og gerir grein fyrir helstu atriðum hennar og niðurstöðum. Þá mun Margrét K. Indriðadóttir frá Hagstofu Íslands fjalla um áhrif vinnutímastyttingar á laun.

Meðal nýjunga í skýrslunni er samanburður á launaþróun karla og kvenna, og á launaþróun innflytjenda og annarra.

Tekið verður við fyrirspurnum á ktn@ktn.is meðan á fundinum stendur. Fundarstjórn verður í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara. 

mbl.is