Sá sem var utan sóttkvíar er í öndunarvél

Kórónuveiran Covid-19 | 10. maí 2021

Sá sem var utan sóttkvíar er í öndunarvél

Einstaklingurinn sem greindist utan sóttkvíar í gær liggur á gjörgæslu Landspítalans og er í öndunarvél. Þetta staðfesti Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is.

Sá sem var utan sóttkvíar er í öndunarvél

Kórónuveiran Covid-19 | 10. maí 2021

Þórólfur segir líklegt að aðilinn sem greindist utan sóttkvíar í …
Þórólfur segir líklegt að aðilinn sem greindist utan sóttkvíar í gær með Covid-19 hafi verið veikur í einhverja daga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Einstaklingurinn sem greindist utan sóttkvíar í gær liggur á gjörgæslu Landspítalans og er í öndunarvél. Þetta staðfesti Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is.

Einstaklingurinn sem greindist utan sóttkvíar í gær liggur á gjörgæslu Landspítalans og er í öndunarvél. Þetta staðfesti Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is.

Þórólfur segir líklegt að hann hafi verið lasinn í nokkurn tíma, þar sem veikindi hans eru komin á þetta stig. 

Spurður hvernig gangi að rekja smitið, sem var það eina síðasta sólarhringinn sem greindist utan sóttkvíar, segir Þórólfur að það geti verið erfitt að fá upplýsingar hjá fólki sem er á öndunarvél, hvar það hefur verið og hverja það hefur hitt. 

„Þannig að rakningin þar er heldur snúnari en vanalega,“ segir Þórólfur. 

„Þetta er hluti af því sem við erum alltaf að tala um, að biðla til fólks að hafa hægt um sig ef það finnur fyrir veikindum og fara í sýnatöku,“ segir hann. 

mbl.is