Smitrakningarappið uppfært með Bluetooth-virkni

Kórónuveiran Covid-19 | 10. maí 2021

Smitrakningarappið uppfært með Bluetooth-virkni

Smitrakningarapp embættis landlæknis og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra hefur verið uppfært og nýtir nú Bluetooth-virkni snjalltækja til að styðja við rakningu smita. 

Smitrakningarappið uppfært með Bluetooth-virkni

Kórónuveiran Covid-19 | 10. maí 2021

Smitrakningarappið.
Smitrakningarappið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Smitrakningarapp embættis landlæknis og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra hefur verið uppfært og nýtir nú Bluetooth-virkni snjalltækja til að styðja við rakningu smita. 

Smitrakningarapp embættis landlæknis og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra hefur verið uppfært og nýtir nú Bluetooth-virkni snjalltækja til að styðja við rakningu smita. 

Fram kemur í tilkynningu að hægt verði að sækja uppfærsluna þriðjudaginn 11. maí. Nýja útgáfa forritsins gerir smitrakningarteymi almannavarnadeildar kleift að rekja hugsanleg smit þar sem tengsl milli aðila eru ekki þekkt og því erfiðara að rekja. 

Þróun appsins er á vegum embættis landlæknis í samvinnu við aðra hýsingar- og þróunaraðila. Öryggisúttekt var gerð á appinu og jafnframt var mat Persónuverndar fengið á virkni þess. Vernd persónuupplýsinga og öryggi forritsins eru þau sömu og áður. 

Forritið mun nú nota Blutetooth-merki símtækja til að reikna út fjarlægð milli tækja. 

Símarnir skiptast á ópersónugreinanlegum upplýsingum, eða svokölluðum lyklum, auk þess sem appið sækir reglulega upplýsingar um lykla sem hafa verið sendir frá öðrum tækjum. Þegar einstaklingur sýkist af kórónuveirunni og er með appið biður rakningarteymi almannavarnadeildar viðkomandi að senda lykla úr appinu. Ef sími sækir upplýsingar um lykil sem hann hefur séð áður fara útreikningar af stað sem meta líkur á útsetningu.

Ef símarnir hafa verið í minna en 2 metra fjarlægð í 15 mínútur kemur upp tilkynning um hugsanlega útsetningu. Þegar einstaklingur fær slíka tilkynningu getur viðkomandi fylgt leiðbeiningum í appinu um skráningu í smitgát og jafnframt fengið boð í sýnatöku.

Fram kemur í tilkynningu að skráning í smitgát sé ákvörðun hvers og eins notanda. Tilgangurinn sé fyrst og fremst að gera hverjum og einum kleift að grípa til ráðstafana, takmarka samneyti við aðra, huga enn betur að einstaklingsbundnum sóttvörnum og fá sjálfkrafa boð í sýnatöku.

mbl.is