Þrjú smit innanlands

Kórónuveiran Covid-19 | 11. maí 2021

Þrjú smit innanlands

Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Aðeins einn þeirra var í sóttkví við greiningu. Nú eru 84 í einangrun og 543 eru í sóttkví. Þrír eru á sjúkrahúsi með Covid-19. Ekkert smit greindist á landamærunum en einn var með mótefni sem fór í skimun þar í gær. Innanlands voru 1.339 skimaðir í gær og 476 á landamærunum.

Alls eru níu með Covid á Norðurlandi vestra en 40 á höfuðborgarsvæðinu og 28 á Suðurlandi. Á Norðurlandi eystra er eitt smit og þrjú eru á Vesturlandi og Suðurnesjum. 

Langflestir eru í sóttkví á Norðurlandi vestra, 380 manns samkvæmt Covid-19, en 68 á Suðurlandi og 74 á höfuðborgarsvæðinu. 

Nýgengi innanlands á hverja 100 þúsund íbúa síðustu tvær vikur er 17,7 og 2,5 á landamærunum. 

Eitt barn á fyrsta ári eru með smit, 7 smit eru meðal barna á aldr­in­um 1-5 ára, 3 smit eru á meðal barna á aldr­in­um 6-12 ára og 4 í ald­urs­hópn­um 13-17 ára. 

Í ald­urs­hópn­um 18-29 ára eru 12 smit, 16 smit er í ald­urs­hópn­um 30-39 ára, 20 smit eru í ald­urs­hópn­um 40-49 ára, 16 smit eru í ald­urs­hópn­um 50-59 ára og fimm meðal fólks á sjö­tugs­aldri. Enginn 70 ára og eldri er með Covid-19 á Íslandi en þessir aldurshópar eru að mestu fullbólusettir. 

55.780 einstaklingar eru fullbólusettir. Eins og áður sagði er búið að bólusetja flesta 70 ára og eldri og á sjötugsaldri er bólusetningu lokið eða hún hafin hjá rúmlega 89%. Hjá 50-59 ára er hlutfallið 68% og rúm 35% hjá 40-49 ára.

mbl.is