Fækkar í einangrun og sóttkví

Kórónuveiran Covid-19 | 12. maí 2021

Fækkar í einangrun og sóttkví

Nú eru 75 í einangrun vegna Covid-19 á Íslandi en voru 84 í gær. Í sóttkví eru 483 samanborið við 543 í gær. Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra voru í sóttkví við greiningu en einn fyrir utan. Fjölgað hefur um einn í einangrun á Norðurlandi vestra og þeir nú tíu talsins. Fyrsta smitið þar í langan tíma greindist á föstudag. Langflestir þeirra sem eru í sóttkví eru búsettir í Skagafirðinum. Alls eru 344 í sóttkví á Norðurlandi vestra. Aftur á móti fækkar hratt fólki í einangrun á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi sem og þeim sem eru í sóttkví í þessum landshlutum. 

Fækkar í einangrun og sóttkví

Kórónuveiran Covid-19 | 12. maí 2021

Fjölmargir hafa farið í skimun á Sauðárkróki undanfarna daga.

Nú eru 969 í skimunarsóttkví en einn greindist með smit við fyrri skimun á landamærunum í gær. 

Eitt barn á fyrsta ári eru með smit, 6 smit eru meðal barna á aldr­in­um 1-5 ára, 3 smit eru á meðal barna á aldr­in­um 6-12 ára og 4 í ald­urs­hópn­um 13-17 ára. 

Í ald­urs­hópn­um 18-29 ára eru 13 smit, 13 smit er í ald­urs­hópn­um 30-39 ára, 15 smit eru í ald­urs­hópn­um 40-49 ára, 17 smit eru í ald­urs­hópn­um 50-59 ára og þrjú meðal fólks á sjö­tugs­aldri. Eng­inn 70 ára og eldri er með Covid-19 á Íslandi en þess­ir ald­urs­hóp­ar eru að mestu full­bólu­sett­ir. 

mbl.is