Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar í dag klukkan 11. Ýmsir þeirra sem tengjast aðgerðum í baráttunni við Covid-19 verða á fundinum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fer yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19-faraldursins hér á landi ásamt Ölmu Möller landlækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni.
Smitrakningarapp embættis landlæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra (Rakning C-19) hefur verið uppfært og nýtir nú bluetooth-virkni snjalltækja til að styðja við rakningu smita. Fjallað verður um uppfærsluna á upplýsingafundinum.
Eftirtaldir sérfræðingar verða kallaðir til: Ólafur Kr. Ragnarsson, sérfræðingur hjá Miðstöð rafrænna heilbrigðislausna, Ingi Steinar Ingason, sviðsstjóri á Miðstöð rafrænna heilbrigðislausna, Hólmar Örn Finnsson persónuverndarfulltrúi og Jóhann B. Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis sóttvarnalæknis og almannavarna.
Hér má sjá upptöku frá fundi dagsins.