Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar í dag klukkan 11:00 og verður fjölmiðlafólki heimilt að mæta á fundinn. Ýmsir þeirra sem tengjast aðgerðum í baráttunni við Covid-19 verða á fundinum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fer yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19-faraldursins hér á landi ásamt Ölmu Möller landlækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni.
Vegna breyttra sóttvarnareglna þar sem fleiri mega koma saman, þá er fjölmiðlafólki boðið að koma á staðinn.
Smitrakningarapp embættis landlæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra (Rakning C-19) hefur verið uppfært og nýtir nú bluetooth-virkni snjalltækja til að styðja við rakningu smita.
Fjallað verður um uppfærsluna á upplýsingafundinum.