Ekkert smit greindist í gær

Kórónuveiran Covid-19 | 18. maí 2021

Ekkert smit greindist í gær

Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Nú eru 58 í einangrun og 120 í sóttkví. Í gær voru 165 í sóttkví og 63 í einangrun þannig að það hefur fækkað í báðum hópum.

Ekkert smit greindist í gær

Kórónuveiran Covid-19 | 18. maí 2021

Skimun á Keflavíkurflugvelli síðasta sumar.
Skimun á Keflavíkurflugvelli síðasta sumar. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Nú eru 58 í einangrun og 120 í sóttkví. Í gær voru 165 í sóttkví og 63 í einangrun þannig að það hefur fækkað í báðum hópum.

Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Nú eru 58 í einangrun og 120 í sóttkví. Í gær voru 165 í sóttkví og 63 í einangrun þannig að það hefur fækkað í báðum hópum.

Ekkert smit greindist í fyrri eða seinni skimun á landamærunum í gær en einn bíður eftir niðurstöðu mótefnamælingar og annar mældist með mótefni. Á sunnudag greindist eitt smit við fyrri skimun á landamærunum og einn reyndist vera með mótefni. 

1.357 voru skimaðir innanlands í gær og 802 á landamærunum. 

Nýgengi smita innanlands síðustu tvær vikur á 100 þúsund íbúa er nú 12 sem er talsverð lækkun frá því í gær er það var 13,6. Á landamærunum er nýgengið 3 en var 3,5 í gær.  

Ekkert barn yngri en eins árs er með Covid á Íslandi. Þrjú börn á aldr­in­um 1-5 ára er með smit og eitt barn á aldr­in­um 6-12 ára. Sjö smit eru í ald­urs­hópn­um 13-17 ára og átta á aldr­in­um 18-29 eru með Covid. 12 smit eru í ald­urs­hópn­um 30-39 ára og 13 meðal 40-49 ára. 11 smit eru meðal fólks á sex­tugs­aldri og þrjú hjá 60-69 ára. 

mbl.is