Þrjú smit greindust innanlands í gær og voru allir í sóttkví við greiningu. Daginn áður greindust sjö með kórónuveiruna og var enginn þeirra í sóttkví en mjög margir voru sendir í sóttkví vegna smitanna sem voru meðal fólks sem tengist.

Sjö smit greindust á landamærunum í gær en í öllum tilvikum er beðið niðurstöðu mótefnamælingar.
Um bráðabirgðatölur er að ræða þar sem síðan covid.is er ekki uppfærð um helgar.
Í gær greindi RÚV frá því að allir nemendur í unglingadeild í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði hafi verið sendir í sóttkví á fimmtudagskvöldið eftir að nemandi greindist með Covid-19. Nemandinn var slappur í skólanum í gær og því var ákveðið að senda alla hundrað nemendur unglingadeildarinnar, og sex kennara, í sóttkví.