Byrjað að bólusetja af handahófi fyrir norðan

Bólusetningar við Covid-19 | 8. júní 2021

Byrjað að bólusetja af handahófi fyrir norðan

Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær um 3.100 skammta af bóluefni í þessari viku og er bólusett með Pfizer á Akureyri í dag. Nýir skammtar af bóluefninu verða nýttir samkvæmt bólusetningarlista sem var valinn af handahóti. 

Byrjað að bólusetja af handahófi fyrir norðan

Bólusetningar við Covid-19 | 8. júní 2021

AFP

Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær um 3.100 skammta af bóluefni í þessari viku og er bólusett með Pfizer á Akureyri í dag. Nýir skammtar af bóluefninu verða nýttir samkvæmt bólusetningarlista sem var valinn af handahóti. 

Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær um 3.100 skammta af bóluefni í þessari viku og er bólusett með Pfizer á Akureyri í dag. Nýir skammtar af bóluefninu verða nýttir samkvæmt bólusetningarlista sem var valinn af handahóti. 

Pfizer bóluefnið verður meðal annars nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu Pfizer bóluefni 18.-21. maí að því er segir á vef Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.

Astra Zeneca bóluefnið mun eingöngu verða notað fyrir seinni bólusetningu.

Bólusett er frá kl. 12:00 – 16:00 á Akureyri í dag og á morgun verður haldið áfram að bólusetja með Pfizer og verður farið áfram niður handahófslista. SMS boð verður send til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er frá kl. 12:00 – 15:00.

Áætlað er að bólusetja tíu árganga fyrir norðan í þessari viku en hér má sjá röðina eftir stöðum.

Á Akureyri er bólusett á slökkviliðsstöðinni.
Á Akureyri er bólusett á slökkviliðsstöðinni. Facebook-síða slökkviliðs Akureyrar

Í dag, þriðjudag mega einnig þeir koma sem fengu Astra Zeneca fyrir 4 vikum eða meira milli kl 11:00 og 12:00 ef bráðnauðsynlegt er að flýta seinni skammti. Virkni eykst með lengri tíma milli skammta. Ekki er hægt að koma á öðrum tíma en bólusett er á slökkviliðsstöð Akureyrar. 

Bólusetning er í boði fyrir:

  • þau sem fá boð um að mæta þessa daga.
  • þau sem eru fædd 1966 og fyrr.
  • þau sem tilheyra árgangshóp sem búið er að draga út.
  • Þau sem hafa fengið boð sem þau hafa ekki nýtt sér.

Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi mun fólk í þessum hópum fá boð í bólusetningu annaðhvort með sms skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram.

mbl.is