Ísraelar varpa sprengjum á Gaza-svæðið að nýju

Ísrael/Palestína | 15. júní 2021

Ísraelar hófu fyrir skömmu loftárásir sem beinast gegn hryðjuverkasamtökunum Hamas á Gaza-svæðinu eftir að íkveikjusprengjur voru sendar með blöðrum frá Gaza-svæðinu til Ísraels. 

Frá loftárásunum sem hófust snemma á miðvikudagsmorgun, að staðartíma.
Frá loftárásunum sem hófust snemma á miðvikudagsmorgun, að staðartíma. AFP

Ísraelar hófu fyrir skömmu loftárásir sem beinast gegn hryðjuverkasamtökunum Hamas á Gaza-svæðinu eftir að íkveikjusprengjur voru sendar með blöðrum frá Gaza-svæðinu til Ísraels. 

Ísraelar hófu fyrir skömmu loftárásir sem beinast gegn hryðjuverkasamtökunum Hamas á Gaza-svæðinu eftir að íkveikjusprengjur voru sendar með blöðrum frá Gaza-svæðinu til Ísraels. 

BBC greinir frá.

Um er að ræða fyrstu alvarlegu átökin sem blossað hafa upp á milli Palestínumanna og Ísraela síðan vopnahlé tók gildi 21. maí síðastliðinn eftir 11 daga átök á milli þjóðanna.

Ekki er ljóst hvort loftárásirnar hafi valdið fólki skaða. 

Blaðamaður breska ríkisútvarpsins sem staddur er á Gaza-svæðinu hefur deilt myndskeiði á samfélagsmiðlum þar sem hann segir að heyra megi í ísraelskum drónum sem vofa yfir svæðinu. 

Sprenging lýsir upp himininn á Gaza-svæðinu.
Sprenging lýsir upp himininn á Gaza-svæðinu. AFP
mbl.is