Ingó veðurguð sakaður um kynferðisofbeldi

MeT­oo - #Ég líka | 3. júlí 2021

Ingó veðurguð sakaður um kynferðisofbeldi

Öfgar, hópur femínista á samfélagsmiðlinum TikTok, hafa í dag birt alls fimm myndskeið þar sem þjóðþekktur tónlistarmaður er sakaður um ítrekað kynferðislegt ofbeldi í garð kvenna og ungra stúlkna.

Ingó veðurguð sakaður um kynferðisofbeldi

MeT­oo - #Ég líka | 3. júlí 2021

Um er að ræða lýsingar á nauðgunum og kynferðislegri áreitni.
Um er að ræða lýsingar á nauðgunum og kynferðislegri áreitni. mbl.is/Árni Sæberg

Öfgar, hópur femínista á samfélagsmiðlinum TikTok, hafa í dag birt alls fimm myndskeið þar sem þjóðþekktur tónlistarmaður er sakaður um ítrekað kynferðislegt ofbeldi í garð kvenna og ungra stúlkna.

Öfgar, hópur femínista á samfélagsmiðlinum TikTok, hafa í dag birt alls fimm myndskeið þar sem þjóðþekktur tónlistarmaður er sakaður um ítrekað kynferðislegt ofbeldi í garð kvenna og ungra stúlkna.

Hópurinn hefur á samfélagsmiðlum forðast að nafngreina tónlistarmanninn, en um er að ræða Ingólf Þórarinsson, eða Ingó veðurguð.

Hann segist í samtali við Vísi hafna þeim ásökunum sem á borð eru bornar í myndskeiðunum. Hann segist sömuleiðis ringlaður.

Ég veit hver ég er og hvað ég hef gert og ég held að það sem er satt eigi eftir að koma í ljós,“ hefur Vísir eftir Ingólfi.

Um er að ræða lýsingar á nauðgunum og kynferðislegri áreitni en tugir frásagna hafa borist hópnum. Spanna sögurnar margra ára tímabil en í myndskeiðunum segir að þær komi ýmist frá stúlkunum sjálfum eða vinkonum sem urðu vitni að atburðarásinni.

Fleiri sögur að berast

Áberandi þykir í frásögnunum hve ungar stúlkurnar voru þegar áreitnin og ofbeldið á að hafa átt sér stað. Sögunum fylgir að þær hafi margar hverjar verið undir lögaldri, og sumar á grunnskólaaldri. 

Ingólfur er einnig sagður hafa áreitt stúlkur þar sem hann hafði verið fenginn til að koma fram, meðal annars á grunnskólaskemmtun.

Að sögn forsvarsmanns Öfga hafa fleiri sögur borist eftir að myndskeiðin litu dagsins ljós. Stór hluti þeirra muni þó ekki rata á samfélagsmiðla að beiðni þolenda.

Ítrekaðar ábendingar

Greint var frá því í gær að Ingólfur myndi stýra brekku­söng á Þjóðhátíð í Eyj­um. Öfgar og samtökin AGN (Aktív­ismi gegn nauðgun­ar­menn­ingu) sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í kjölfarið þar sem óskað var svara frá þjóðhátíðarnefnd vegna valsins.

„Af hverju að taka áhætt­una eft­ir ít­rekaðar ábend­ing­ar um meinta mis­jafna hegðun? Hvernig væri að leyfa þolend­um að njóta vaf­ans?“ sagði meðal annars í yfirlýsingunni.

Í tísti hér fyrir neðan má sjá myndskeiðin þar sem hluti frásagnanna kemur fram.



mbl.is