Háskólanemar dæmdir til fangelsisvistar

Hvíta-Rússland | 16. júlí 2021

Háskólanemar dæmdir til fangelsisvistar

Dómstóll í Hvíta-Rússlandi hefur dæmt 11 háskólanema og kennara í að minnsta kosti tveggja ára fangelsi fyrir þátttöku þeirra í mótmælum gegn stjórnvöldum á síðasta ári. 

Háskólanemar dæmdir til fangelsisvistar

Hvíta-Rússland | 16. júlí 2021

Frá mótmælum í Hvíta-Rússlandi.
Frá mótmælum í Hvíta-Rússlandi. AFP

Dómstóll í Hvíta-Rússlandi hefur dæmt 11 háskólanema og kennara í að minnsta kosti tveggja ára fangelsi fyrir þátttöku þeirra í mótmælum gegn stjórnvöldum á síðasta ári. 

Dómstóll í Hvíta-Rússlandi hefur dæmt 11 háskólanema og kennara í að minnsta kosti tveggja ára fangelsi fyrir þátttöku þeirra í mótmælum gegn stjórnvöldum á síðasta ári. 

Hópurinn var ákærður fyrir að rjúfa almannafrið. Tíu háskólanemanna og kennarinn voru dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi á meðan einn fékk tveggja ára fangelsisdóm. 

Hópurinn var handtekinn í nóvember á síðasta ári í kjölfar umfangsmikilla mótmæla gegn Alexander Lúkasjenkó, forseta Hvíta-Rússlands. Mótmælin hófust í kjölfar forsetakosninga í landinu. Lúkasjenkó var sagður sigurvegari kosninganna, sem fjölmargir, m.a. Bandaríkin og Evrópusambandið, hafa véfengt. 

mbl.is