Staðnir að ítrekuðum framhjálöndunum

Eftirlit með veiðum | 27. júlí 2021

Staðnir að ítrekuðum framhjálöndunum

Togbáturinn Valþór GK-123 hefur verið sviptur leyfi til veiða í atvinnuskyni í fjórar vikur vegna ítrekaðrar löndunar fram hjá hafnarvog.

Staðnir að ítrekuðum framhjálöndunum

Eftirlit með veiðum | 27. júlí 2021

Valþór Gk-123.
Valþór Gk-123. Ljósmynd/Hilmar Bragi

Togbáturinn Valþór GK-123 hefur verið sviptur leyfi til veiða í atvinnuskyni í fjórar vikur vegna ítrekaðrar löndunar fram hjá hafnarvog.

Togbáturinn Valþór GK-123 hefur verið sviptur leyfi til veiða í atvinnuskyni í fjórar vikur vegna ítrekaðrar löndunar fram hjá hafnarvog.

Fram kemur á vef Fiskistofu að ákvörðun Fiskistofu þess efnis hafi verið tekin þann 20. júlí og gildi frá og með 24. ágúst og til og með 20. september. 

Í ákvörðun Fiskistofu kemur fram að við löndun úr skipinu þann 28. apríl hafi hafnarstarfsmaður orðið þess var að 572 kíló af þorski voru flutt af löndunarstað án þess að aflinn hafi verið vegin á hafnarvog.

Er það brot við lög um umgengni nytjastofna sjávar þar sem mælt er fyrir um að allur afli fiskiskips skuli veginn á hafnarvog þegar við löndun sem og mælt er fyrir um að ekið skuli lönduðum afla rakleitt á hafnarvog.

Ítrekuð brot

Skipið hafði áður verið svipt leyfi til veiða í atvinnuskyni í fjórar vikur fyrr í sumar vegna sambærilegs brots.

mbl.is