„Í þeim örfáu tilvikum sem bólusettir smituðust af fyrri afbrigðum kórónuveirunnar smituðu þeir ekki út frá sér. Það er aðra sögu að segja af Delta-afbrigði veirunnar,“ sagði Rochelle Walensky, framkvæmdastjóri Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC), í samtali við CNN í dag.

Þar færði hún rök fyrir því að stofnunin hefði mælt með víðtækari grímunotkun Bandaríkjamanna en áður.
Hún sagði útlit fyrir að í einhverjum tilvikum gætu þeir sem hefðu verið bólusettir gegn Covid-19 smitað aðra af Delta-afbrigði veirunnar þó svo að það væri nánast aldrei tilfellið hvað varðar önnur afbrigði veirunnar.
Tilmæli Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna eru á þá leið að fullbólusettir Bandaríkjamenn beri andlitsgrímu á almenningsstöðum innandyra. Það er breyting frá fyrri tilmælum stofnunarinnar sem voru á þá leið að fullbólusettir einstaklingar þyrftu ekki að bera andlitsgrímu innandyra.