Guðlaugur lýsir áhyggjum vegna ástandsins á Kúbu

Mótmælt á Kúbu | 29. júlí 2021

Guðlaugur lýsir áhyggjum vegna ástandsins á Kúbu

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra birti færslu á Twitter síðu sinni nú í dag þar sem hann lýsir áhyggjum sínum af mannréttindabrotum og grundvallarfrelsisskerðingum sem íbúar Kúbu búa við. 

Guðlaugur lýsir áhyggjum vegna ástandsins á Kúbu

Mótmælt á Kúbu | 29. júlí 2021

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lýsir áhyggjum sínum af …
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lýsir áhyggjum sínum af ástandinu á Kúbu í Twitter færslu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra birti færslu á Twitter síðu sinni nú í dag þar sem hann lýsir áhyggjum sínum af mannréttindabrotum og grundvallarfrelsisskerðingum sem íbúar Kúbu búa við. 

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra birti færslu á Twitter síðu sinni nú í dag þar sem hann lýsir áhyggjum sínum af mannréttindabrotum og grundvallarfrelsisskerðingum sem íbúar Kúbu búa við. 

Einnig kemur fram í tístinu að Guðlaugur tekur undir ákall þess efnis að friðsömum mótmælendum verði sleppt úr haldi, en margir mótmælendur hafa verið handteknir. Einnig tekur hann undir mikilvægi þess að netsambandi verði komið aftur á í landinu og að fjölmiðlar njóti frelsis í störfum sínum. 

„Það er bara augljóst að fólkið á Kúbu er komið með nóg af áralangri ógnarstjórn þar í landi. Þegar stjórnvöld virða grundvallar mannréttindi að vettugi og fremja ítrekuð mannréttindabrot þá eru þetta einu bjargir almennings,“ segir Guðlaugur Þór í samtali við mbl.is.

Ástandið á Kúbu hefur verið slæmt undanfarnar vikur, en íbúar hafa mótmælt ástandinu og ríkisstjórn landsins harðlega. Mbl.is hefur áður greint frá því hvernig þúsundir Kúbverja flykktust á götur og mótmæltu bágu efnahagsástandi og ólýðræðislegum stjórnarháttum þar í landi. 

mbl.is