Handtekin fyrir mótmæli við bólusetningu

Bólusetningar við Covid-19 | 29. júlí 2021

Kona var handtekin við Suðurlandsbraut í morgun, þar sem þungaðar konur biðu í röð eftir því að komast í bólusetningu, en skipulögð bólusetning þeirra hófst í dag.

Röð í skimun við Suður­lands­braut 34. Mynd úr safni.
Röð í skimun við Suður­lands­braut 34. Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kona var handtekin við Suðurlandsbraut í morgun, þar sem þungaðar konur biðu í röð eftir því að komast í bólusetningu, en skipulögð bólusetning þeirra hófst í dag.

Kona var handtekin við Suðurlandsbraut í morgun, þar sem þungaðar konur biðu í röð eftir því að komast í bólusetningu, en skipulögð bólusetning þeirra hófst í dag.

Konan mótmælti bólusetningunum og veittist að heilbrigðisstarfsfólki með látum samkvæmt heimildum mbl.is, og olli töluverðu uppnámi á meðal þeirra sem biðu í röðinni.

„Þið eruð að drepa börnin okkar,“ er á meðal þess sem konan mun hafa tjáð viðstöddum.

Lögregla mætti í kjölfarið á svæðið og handtók konuna.

Barnshafandi konum býðst bólusetning í dag með bóluefnum Pfizer og Moderna. Á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að í ljósi breyttra aðstæðna og þess að ekkert hafi komið fram um hættu þessara bóluefna er mælt með að konurnar fái bólusetningu.

Uppfært:

mbl.is