Stytta einangrunartíma fyrir bólusetta

Kórónuveiran Covid-19 | 30. júlí 2021

Stytta einangrunartíma fyrir bólusetta

Ákveðið hefur verið að snúa aftur til þess að leggja mat á styttingu einangrunar á einstaklingsgrundvelli, út frá því hvernig veiran hefur hegðað sér.  

Stytta einangrunartíma fyrir bólusetta

Kórónuveiran Covid-19 | 30. júlí 2021

Munu því bólusettir einstaklingar sem teljast heilsuhraustir og hafa verið …
Munu því bólusettir einstaklingar sem teljast heilsuhraustir og hafa verið einkennalausir í þrjá daga aðeins þurfa að vera í einangrun í tíu daga en ekki í tvær vikur líkt og áður. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ákveðið hefur verið að snúa aftur til þess að leggja mat á styttingu einangrunar á einstaklingsgrundvelli, út frá því hvernig veiran hefur hegðað sér.  

Ákveðið hefur verið að snúa aftur til þess að leggja mat á styttingu einangrunar á einstaklingsgrundvelli, út frá því hvernig veiran hefur hegðað sér.  

Munu því bólusettir einstaklingar sem teljast heilsuhraustir og hafa verið einkennalausir í þrjá daga aðeins þurfa að vera í einangrun í tíu daga en ekki í tvær vikur líkt og áður.

Einangrun smitaðra einstaklinga hefur miðast við fjórtán daga og sjö daga frá síðustu einkennum frá því að Alpha-afbrigði veirunnar var í umferð í vor, að sögn Kamillu S. Jósefsdóttur, staðgengils sóttvarnarlæknis. Verður það áfram staðan fyrir þá sem ekki hafa þegið bólusetningu.

Undantekningarákvæði í reglugerð

Reglu­gerð heil­brigðisráðuneyt­is­ins um sótt­kví og ein­angr­un kveður á um þetta fyrirkomulag en í fylgiskjali henn­ar stend­ur hins veg­ar að „al­mennt hraust­ir ein­stak­ling­ar með eng­in eða væg ein­kenni geti út­skrif­ast úr ein­angr­un ef komn­ir eru að minnsta kosti 10 dag­ar frá já­kvæðu sýni og þeir hafa verið al­veg ein­kenna­laus­ir í að minnsta kosti þrjá daga“.

Þarf læknir á göngudeild að meta þetta samkvæmt reglugerðinni en ákvæðið hefur ekki verið virkt frá því að bylgja Alpha-afbrigðisins herjaði og þar til nú, vegna tilmæla sóttvarnalæknis.

„Við höfum alltaf unnið þessar leiðbeiningar um einangrun í samvinnu við læknana á Landspítalanum. Pössum að þeir séu sammála því sem við mælum með og þeir passa að við séum sammála því sem þeir vinna eftir,“ segir Kamilla um þá stöðu að læknar telji sig þurfa að leita samþykkis sóttvarnalæknis við mat á því hvort stytta megi einangrunartíma heilsuhraustra einstaklinga. 

Vildi fyrst afla sér gagna

Kamilla fékk beiðni lækna á göngudeild um að stytta einangrunartíma heilsuhrausts einstaklings í dag en vildi ekki gefa grænt ljós strax.

Hún vildi fyrst afla sér gagna frá Sóttvarnarstofnun Evrópu um hvort óhætt væri að stytta einangrunartímann í ljósi þess hve erfitt Delta-afbrigðið er viðfangs í tengslum við útbreiðslu.

„Þetta snýst fyrst og fremst um að fólk sé ekki ennþá smitandi þegar það er losað úr einangrun, við vitum að Delta er jafnvel smitandi hjá einkennalausum,“ segir Kamilla.

mbl.is