Boða til mótmæla fyrir utan KSÍ

MeT­oo - #Ég líka | 30. ágúst 2021

Boða til mótmæla fyrir utan KSÍ

Forvarnarhóparnir Bleiki fíllinn og Öfgar hafa boðað til friðsamlegra mótmæla næsta fimmtudag kl. 17 fyrir utan höfuðstöðvar Knattspyrnusambands Íslands í Laugardal. Yfirskrift mótmælanna er „Stjórnin út“, samkvæmt tilkynningu frá hópunum tveimur.

Boða til mótmæla fyrir utan KSÍ

MeT­oo - #Ég líka | 30. ágúst 2021

Skrifstofa KSÍ í Laugardal.
Skrifstofa KSÍ í Laugardal. mbl.is/Sigurður Unnar

Forvarnarhóparnir Bleiki fíllinn og Öfgar hafa boðað til friðsamlegra mótmæla næsta fimmtudag kl. 17 fyrir utan höfuðstöðvar Knattspyrnusambands Íslands í Laugardal. Yfirskrift mótmælanna er „Stjórnin út“, samkvæmt tilkynningu frá hópunum tveimur.

Forvarnarhóparnir Bleiki fíllinn og Öfgar hafa boðað til friðsamlegra mótmæla næsta fimmtudag kl. 17 fyrir utan höfuðstöðvar Knattspyrnusambands Íslands í Laugardal. Yfirskrift mótmælanna er „Stjórnin út“, samkvæmt tilkynningu frá hópunum tveimur.

Hóparnir tveir skoruðu á Guðna Bergsson, formann KSÍ, til að segja af sér á föstudaginn sl. sem hann gerði svo. Hóparnir segja afsögn Guðna þó ekki nægja heldur þurfi öll stjórnin að víkja.

Aðgerðasinnahópurinn Öfgar hefur birt nafnlausar frásagnir kvenna af ofbeldi á …
Aðgerðasinnahópurinn Öfgar hefur birt nafnlausar frásagnir kvenna af ofbeldi á samfélagsmiðlinum TikTok. Ljósmynd/Aðsend

Tilkynning frá hópunum tveimur hljómar svona í heild sinni:

„Vegna yfirlýsingar KSÍ í gær er ljóst að það á að láta einn mann axla ábyrgð á gjörðum KSÍ og halda að það nægi. Við sem þjóð sjáum í gegnum þann gjörning.  

Spilling sem þessi viðgengst ekki vegna eins manns auk þess sem þessi eitraða menning hefur verið við lýði mun lengur en Guðni hefur starfað innan KSÍ.

Klara Bjartmarz fékk hið umdeilda bréf, það eru til sannanir fyrir því. Samt neitar hún fyrir það. Hún segist ekki hafa horft á Guðna í Kastljósi, hver trúir því? Í alvörunni Klara, ef allt þetta gat viðgengist án þinnar vitundar, þá hlýturðu að sjá að þú ert ekki starfi þínu vaxin. Stjórnin verður að víkja, það sér það hver sál.

Að auki eru til heimildir fyrir því að annar varaformaður KSÍ hefði verið í gleðskap með kvennalandsliðinu þar sem þjálfarinn gerðist sekur um ólíðandi framkomu. Henni fannst það ekki eiga erindi við aðra í stjórn KSÍ og þagði með honum. Hann var látinn fara stuttu seinna.

Það þarf að uppræta þessa eitruðu menningu. Það verður ekki gert með sömu stjórn og hefur viðhaldið henni. Íslensk knattspyrna og þolendur eiga betra skilið.

Við boðum því til friðsamlegra mótmæla næsta fimmtudag 2. september klukkan 17:00. Yfirskrift mótmælanna er „Stjórnin út“. Þið megið geta tvisvar hvar.“

mbl.is