Gefa Klöru rautt spjald

MeT­oo - #Ég líka | 31. ágúst 2021

Gefa Klöru rautt spjald

Friðsælu mótmælin fara fram á fimmtudag, þrátt fyrir að stjórn KSÍ hafi sagt af sér. Nú verða þau undir yfirskriftinni „Klara þarf að fara“ en áður var boðað til þeirra til þess að bola stjórninni burt. 

Gefa Klöru rautt spjald

MeT­oo - #Ég líka | 31. ágúst 2021

Friðsælu mótmælin fara fram á fimmtudag, þrátt fyrir að stjórn …
Friðsælu mótmælin fara fram á fimmtudag, þrátt fyrir að stjórn KSÍ hafi sagt af sér. Nú verða þau undir yfirskriftinni „Klara þarf að fara“. Ljósmynd/Aðsend

Friðsælu mótmælin fara fram á fimmtudag, þrátt fyrir að stjórn KSÍ hafi sagt af sér. Nú verða þau undir yfirskriftinni „Klara þarf að fara“ en áður var boðað til þeirra til þess að bola stjórninni burt. 

Friðsælu mótmælin fara fram á fimmtudag, þrátt fyrir að stjórn KSÍ hafi sagt af sér. Nú verða þau undir yfirskriftinni „Klara þarf að fara“ en áður var boðað til þeirra til þess að bola stjórninni burt. 

Allir meðlimir stjórnar KSÍ hafa sagt af sér en Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri sambandsins, segist ætla að halda áfram starfi sínu.

Mótmælin samkvæmt áætlun

Mótmælin hefjast klukkan 17 fyrir framan höfuðstöðvar KSÍ við Laugardalsvöll á fimmtudag, líkt og áður var áformað. 

Í yfirlýsingu frá aðgerðarhópunum Öfgum og Bleika fílnum, sem boða til mótmælanna, kemur fram sú afstaða þeirra að framferði Klöru sé óboðlegt. 

„Hún hefur fengið að skauta framhjá sannleikanum ítrekað, axlar enga ábyrgð og virðist ekkert sjá rangt við sitt framferði. Hún reynir að varpa ábyrgðinni á öll önnur í kringum sig, en sér ekkert að hjá sér sjálfri. “

„Hún sagði ekki satt og rétt frá“

Þar er jafnframt rakið að í fyrstu hafi Klara neitað vitneskju um kynferðisbrot leikmanna, en í gærkvöldi viðurkennt að hafa vitað af hópnauðgun tveggja landsliðsmanna og af ofbeldismálinu sem Kolbeinn Sigþórsson, fótboltamaður, gekkst við. 

„Þarna kemur hún upp um sig, hún sagði ekki satt og rétt frá. Hún segist vita að ferlið er varðar hópnauðgunina hafi ekki verið nægilega gott en vissi samt ekki af neinni hópnauðgun í fyrradag. Hún fylgir málunum, sem hún setur í ferli, ekki einu sinni eftir.“

Aðgerðarhóparnir gagnrýna sérstaklega þá ákvörðun Klöru að samþykkja yfirlýsingu KSÍ, vitandi að hún var röng. Með því hafi hún veitt samþykki sitt fyrir því að saka Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur, kynfræðing, um lygar og þagga niður í henni sem og þeim sem vöktu athygli á brotalömum innan sambandsins. 

Klara muni bara setja hlutina í „hin títt nefndu ferli“

„Klara verður að fara - því þó að nýtt fólk komi inn þá mun Klara ábyggilega bara setja hlutina áfram í þessi títt nefndu ferli. Þöggunin og ofbeldismálin sem fengu að viðgangast undir hennar augum eru það alvarleg og ítrekuð að hún hlýtur að sjá það sjálf að hún er ekki starfi sínu vaxin. Það er ekki hægt að líta fram á veginn og betrumbæta með fólk innanborðs sem var hluti af og viðhélt þessari eitruðu menningu innan KSÍ.“

„KSÍ hélt áfram að maraþonfunda og ljúga þangað til styrktaraðilar fóru að taka afstöðu. Þá fór KSÍ að hræðast peningamissi.“

Að mati aðgerðarhópanna vega peningar meira hjá sambandinu en raddir þolenda og kröfur samfélagsins. Skora þeir því á styrktaraðila KSÍ að beita áfram þeim þrýstingi sem þeir hafa gert. 

„ Rautt spjald á Klöru. Nóg er nóg.“

mbl.is