Mæla með bólusetningu fyrir 12 til 15 ára

Bólusetningar við Covid-19 | 13. september 2021

Mæla með bólusetningu fyrir 12 til 15 ára

Öllum börnum á aldrinum 12 til 15 ára ætti að vera boðið að fá bóluefni við kórónuveirunni. Ekki á þó að skylda þau til þess að fara í bólusetningu.

Mæla með bólusetningu fyrir 12 til 15 ára

Bólusetningar við Covid-19 | 13. september 2021

Ferðamaður í London gengur framhjá skilti sem bendir á svæði …
Ferðamaður í London gengur framhjá skilti sem bendir á svæði þar sem fólk getur farið í skimun við veirunni. AFP

Öllum börnum á aldrinum 12 til 15 ára ætti að vera boðið að fá bóluefni við kórónuveirunni. Ekki á þó að skylda þau til þess að fara í bólusetningu.

Öllum börnum á aldrinum 12 til 15 ára ætti að vera boðið að fá bóluefni við kórónuveirunni. Ekki á þó að skylda þau til þess að fara í bólusetningu.

Þetta er skoðun háttsettra embættismanna í breska heilbrigðiskerfinu sem eru ráðgjafar fjögurra ríkisstjórna Breta á Englandi, Norður-Írlandi, í Skotlandi og Wales.

Bretland hefur farið einna verst út úr Covid-19 og eru skráð dauðsföll orðin fleiri en 134 þúsund talsins.

Þrátt fyrir að vel hafi gengið að bólusetja í Bretlandi er fjöldi greindra smita enn mikill vegna Delta-afbrigðisins. Embættismenn hafa áhyggjur af því að smitum haldi áfram að fjölga núna þegar skólar eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí.

Kona bíður eftir strætó í London.
Kona bíður eftir strætó í London. AFP

Deilt hefur verið um bólusetningar barna í landinu þrátt fyrir að önnur lönd hafi ráðist í þær.

Nefnd sem veitir breskum heilbrigðisstofnunum ráðgjöf þegar kemur að bólusetningum og ónæmi (JCVI) segir að „kostirnir sem byggjast aðallega á heilsuverndarsjónarmiði teljast ekki vera nægir til að styðja við bakið á bólusetningu allra, annars heilbrigðra barna á aldrinum 12 til 15 ára á þessari stundu“.

En háttsettu embættismennirnir í breska heilbrigðiskerfinu (CMO) segja að bóluefnin eigi að vera í boði eftir að tekin hafi verið til greina önnur atriði á borð við menntun og andlega heilsu.

Segja þeir að bólusetning 12 til 15 ára ungmenna „muni aðstoða við að draga úr Covid-19-smitum í skólum“. Í kringum þrjár milljónir barna gætu þannig fengið fyrsta skammt af bóluefni Pfizer.

mbl.is