Mörg börn létu sjá sig í bólusetningu

Kórónuveiran Covid-19 | 13. september 2021

Mörg börn létu sjá sig í bólusetningu

Mæting í seinni bólusetningu barna á aldrinum 12 til 15 ára í dag var fín og gekk bólusetningin vel að sögn Dagnýjar Hængsdóttur, verkefnastjóra bólusetninga hjá heilsugæslunni. Þessi hópur fær bólusetningu með bóluefni Pfizer.

Mörg börn létu sjá sig í bólusetningu

Kórónuveiran Covid-19 | 13. september 2021

Börn á aldrinum 12 til 15 ára þáðu seinni bóluefnaskammtinn …
Börn á aldrinum 12 til 15 ára þáðu seinni bóluefnaskammtinn í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mæting í seinni bólusetningu barna á aldrinum 12 til 15 ára í dag var fín og gekk bólusetningin vel að sögn Dagnýjar Hængsdóttur, verkefnastjóra bólusetninga hjá heilsugæslunni. Þessi hópur fær bólusetningu með bóluefni Pfizer.

Mæting í seinni bólusetningu barna á aldrinum 12 til 15 ára í dag var fín og gekk bólusetningin vel að sögn Dagnýjar Hængsdóttur, verkefnastjóra bólusetninga hjá heilsugæslunni. Þessi hópur fær bólusetningu með bóluefni Pfizer.

Færri börn en í fyrri bólusetningu þurftu þá að fara afsíðis og fá bólusetningu í lokuðu rými að hennar sögn. 

„Áttum von á að þau myndu öll aftur mæta“

„Það var rólegra tempó en síðast, við vissum meira út í hvað við vorum að fara og það var ekki mikið stress í gangi. Þau voru brattari núna,“ segir hún í samtali við mbl.is. 

Hafið þið fundið fyrir því að færri börn mæti í bólusetningu eftir að borið hefur á gagnrýnisröddum gegn bólusetningum þeirra?

„Nei, við áttum von á að þau myndu öll aftur mæta og það gerðu þau.“

Á morgun verður árgangi 2008 og 2009 boðið í seinni bólusetningu og hefur þá bólusetningu aldurshópsins 12 til 15 verið lokið.

Þá er bólusett alla virka daga á milli 10.00 og 15.00 á Suðurlandsbraut 34 með Pfizer, Moderna og Janssen en bóluefnið Astra Zeneca er eingöngu í boði á föstudögum.

mbl.is