Óbólusettum heilbrigðisstarfsmönnum sagt upp

Kórónuveiran Covid-19 | 16. september 2021

Segja upp þúsundum óbólusettra heilbrigðisstarfsmanna

Þúsundum heilbrigðisstarfsmanna, víðsvegar um Frakkland, hefur verið sagt upp störfum, og munu ekki fá greiddan uppsagnarfrest, fyrir að hafa ekki lokið við bólusetningu við Covid-19. 

Segja upp þúsundum óbólusettra heilbrigðisstarfsmanna

Kórónuveiran Covid-19 | 16. september 2021

Emmanuel Macron, forseti Frakklands.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands. AFP

Þúsundum heilbrigðisstarfsmanna, víðsvegar um Frakkland, hefur verið sagt upp störfum, og munu ekki fá greiddan uppsagnarfrest, fyrir að hafa ekki lokið við bólusetningu við Covid-19. 

Þúsundum heilbrigðisstarfsmanna, víðsvegar um Frakkland, hefur verið sagt upp störfum, og munu ekki fá greiddan uppsagnarfrest, fyrir að hafa ekki lokið við bólusetningu við Covid-19. 

Þessu lýsti Oliver Veran, heilbrigðisráðherra Frakklands yfir í dag. 

„Um þrjú þúsund heilbrigðisstarfsmönnum hefur verið tilkynnt um uppsögn sína sem ekki hafa verið bólusettir,“ sagði Vera í RTL útvarpi í morgun. 

Þá bætti hann við að nokkrir tugir til viðbótar hefðu skilað inn uppsögn sinni að fyrra bragði, í stað þess að vera sagt upp, eða þiggja bólusetningu. 

Til samanburðar starfa um 2,7 milljónir við heilbrigðiskerfið í Frakklandi fullyrti Vera að „áframhaldandi heilbrigðisþjónusta yrði tryggð“. 

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, setti starfsfólki sjúkrahúsa, hjúkrunarheilima og slökkviliða afarkosti í júlí, um að vera búin að fá í hið minnsta einn skammt af bóluefni við Covid-19. 

mbl.is