Guðmundur Ingi vill minnka matarsóun um 50%

Umhverfisvitund | 24. september 2021

Guðmundur Ingi vill minnka matarsóun um 50%

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt  fram fyrstu heildstæðu aðgerðaáætlun gegn matarsóun á Íslandi og þeim umhverfisáhrifum sem af henni hljótast.

Guðmundur Ingi vill minnka matarsóun um 50%

Umhverfisvitund | 24. september 2021

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt  fram fyrstu heildstæðu aðgerðaáætlun gegn matarsóun á Íslandi og þeim umhverfisáhrifum sem af henni hljótast.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt  fram fyrstu heildstæðu aðgerðaáætlun gegn matarsóun á Íslandi og þeim umhverfisáhrifum sem af henni hljótast.

Kosningar til alþingis fara fram á morgun og því ekki ljóst hvort Guðmundur Ingi muni ná að fylgja aðgerðaáætluninni eftir eða hvort ákvörðun um framtíð hennar verði lögð í hendur annarra. Áætlunin byggir á tillögum starfshóps sem skipaður var árið 2019.

Aðgerðaáætlunin samanstendur af 24 aðgerðum sem snúa að allri virðiskeðju matvæla, frá frumframleiðslu til neytenda. Með aðgerðunum vill Guðmundur minnka matarsóun í allri virðiskeðjunni um 30% fyrir árið 2025 og um 50% fyrir árið 2030.

„Áætlunin er í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og stefnu um úrgangsforvarnir. Hún gerir ráð fyrir samstilltu átaki samfélagsins alls; atvinnulífs, almennings og stjórnvalda. Samstarf atvinnulífs og stjórnvalda um málefnið verður aukið og atvinnulífið setur það í forgang. Þá verður reglubundnum mælingum á matarsóun komið á fót, hagrænir hvatar innleiddir, menntun og fræðsla aukin og stutt við nýsköpun, rannsóknir og þróunarvinnu sem dregur úr matarsóun,“ segir í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu um málið. 

Þessi barátta margborgar sig“

Í umræddri tilkynningu er eftirfarandi haft eftir Guðmundi Inga:

„Hér eru settar fram aðgerðir sem miða að því að Ísland nái markmiðum sínum um minni matarsóun. Með því að minnka matarsóun drögum við úr losun gróðurhúsalofttegunda, myndun úrgangs og ágangi á takmarkaðar auðlindir jarðar. Við aukum fæðuöryggi, styðjum við líffræðilega fjölbreytni og spörum peninga. Þessi barátta margborgar sig.“

Í tilkynningunni segir að áætlunin hafi verið unnin „í góðu samstarfi við hagaðila.“ Áætlunin byggir á tillögum starfshóps sem ráðherra skipaði árið 2019 til að móta tillögur gegn matarsóun og í sátu fulltrúar stjórnvalda, atvinnulífs og frjálsra félagasamtaka.

mbl.is