Pálmi býr á Tenerife og kennir fólki að taka alvöru ljósmyndir

Tenerife | 24. september 2021

Pálmi býr á Tenerife og kennir fólki að taka alvöru ljósmyndir

Pálmi Guðmundsson eigandi fjarnámskeið.is býr á Tenerife og kennir fólki að taka fallegar ljósmyndir á netnámskeiði. 

Pálmi býr á Tenerife og kennir fólki að taka alvöru ljósmyndir

Tenerife | 24. september 2021

Pálmi Guðmundsson býr á Tenerife.
Pálmi Guðmundsson býr á Tenerife.

Pálmi Guðmundsson eigandi fjarnámskeið.is býr á Tenerife og kennir fólki að taka fallegar ljósmyndir á netnámskeiði. 

Pálmi Guðmundsson eigandi fjarnámskeið.is býr á Tenerife og kennir fólki að taka fallegar ljósmyndir á netnámskeiði. 

Pálmi hefur frá árinu 2002 boðið einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum upp á námskeið í ljósmyndun, stúdíótökum, almennum myndatökum, „Lightroom“-vinnslu og Photoshopvinnslu. Pálmi setti á laggirnar fjarnámskeið í ljósmyndun árið 2009. Hann flutti til Tenerife 2019, kennir ljósmyndun og vinnur við vefsíðugerð.

„Markmið fjarnámskeiðsins er að kenna grunnatriðin í ljósmyndatöku – skref fyrir skref – bæði fyrir áhugaljósmyndara og eins þá sem hyggja á frekara nám í ljósmyndun. Kennd eru undirstöðuatriði í ljósmyndatækninni, meðal annars hvernig best er að stilla myndavélina fyrir mismunandi myndatökur, hvernig hægt er að ná sem mestu úr myndavélinni. Auk þess eru sýndar alls kyns myndatökur og sýnd mörg dæmi. Hér er um að ræða mjög ítarlegt kennsluefni í ljósmyndun.

Gefin eru góð ráð fyrir almennar myndatökur bæði innandyra og utandyra, sýnd notkun á ljósum í stúdíói, „raw“ vinnsla í tölvu ásamt grunnvinnslu í Photoshop og margt fleira. Ég kenni á aðalatriði í Lightroom-forritinu. Grunnstillingar á mörgum myndavélum, ásamt öðrum stillingum á vélunum, eru útskýrðar. Fjallað um hvernig er best að stilla myndavélina við að ná sem bestum myndum við hinar ýmsu aðstæður. Vandamál og lausnir, þar sem tekin eru fyrir helstu vandamál varðandi myndatökur og bent á góðar lausnir. Fjallað um videotöku og videovinnslu. Síðan er fjallað um videoklippiforrit og sýnt hvernig á að klippa video, hljóðsetja ásamt mörgu öðru. Það er mikinn fróðleik um ljósmyndun að finna á þessu fjarnámskeiði og er nýju námsefni bætt inn í hverjum mánuði.“

Hann segir fjarnamskeid.is með þægilegt viðmót og kennsluefnið er skipulega sett upp.“

Hvað einkennir góða ljósmynd?

„Góð mynd er mynd sem snertir þig, vekur upp tilfinningar, sem geta verið glaðlegar, sorglegar, jafnvel sem segja sögu. Myndirnar þurfa helst að uppfylla ákveðnar tæknikröfur ásamt því að vera rétt upp byggðar.“

Pálmi er sjálfmenntaður ljósmyndari og hefur tekið ljósmyndir síðan 1967.

Hvað getur þú sagt mér um menntun þína og feril?

„Ég hef verið með ljósmyndakennlu á vegum ljosmyndari.is frá árinu 2002. Ég hef kennt hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum og einnig hjá Símenntunarmiðstöðum um land allt. Myndir eftir mig hafa birst opinberlega víða um heim, í bæklingum, plakötum, dagblöðum, tímaritum, póstkortum, jólakortum, dagatölum, í auglýsingum og fleira. Ríkissjónvarpið birti myndir frá mér í dagskrárlok í yfir 20 ár. Einnig hef ég aðeins fengist við videotökur og vinnslu. Bjó til videómynd um Akureyri og sendi í stuttmyndakeppni sem Stöð 2 , Japis og Hótel Loftleiðir stóðu fyrir árið 1989 og lenti þar í öðru sæti.“

Ættu allir að kunna að taka fallegar ljósmyndir?

„Fólk hefur auðvitað mismikla hæfileika, en með góðri þjálfun ætti fólk að geta tekið fínar myndir, en það er ekki búnaðurinn sem skiptir máli, heldur er það augað sem skiptir öllu máli.“

Pálmi segir að hann hafi gaman af því að taka ljósmyndir úr flugvél.

„Eitt sinn hafði ég samband við Reyni Ragnarsson, lögreglumann í Vík í Mýrdal, en hann gerði mikið af því að fljúga. Á leiðinni út á flugvöll spurði ég hann hvort vélin væri klár, þá svaraði hann um hæl: ég tók af hurðina þín megin. Mér brá aðeins við að heyra þetta en þegar ég var kominn inn í vélina sagði Reynir, settu á þig belti og bittu þig með kaðli, sem ég og gerði. Þegar við vorum yfir þessu fallega svæði í Landmannalaugum fór ég að undirbúa mig með myndatökuna. Þá sagði ég við Reyni, að ég ætlaði að skreppa út fyrir og hann sagði, já þú bara passar þig. Þar með fór ég úr beltinu og var reyndar bundinn með kaðlinum, setti annan fótinn á vængsstífuna, en vindurinn var svo mikill að ég náði ekki í fyrstu tilraun, en það tókst í annarri tilraun. Svo teygði ég mig bara út og var kominn rúmlega hálfur út úr vélinni og tók þannig magnaðar myndir. Þetta var alveg æðisleg tilfinning að hafa svona gott útsýni og fjöllin og jöklana fyrir neðan og sjá svo Vestmannaeyjar í fjarska.“

Hvenær uppgötvaðir þú fyrst áhuga þinn á ljósmyndun?

„Ég byrjaði að taka ljósmyndir 12 ára. Ég var að skoða þær myndir sem ég tók sem unglingur og þær voru býsna góðar, þrátt fyrir ungan aldur, þannig að ég var með ágætisauga fyrir myndbyggingu frá upphafi.“

mbl.is