Magnús ætlar að kæra kosningarnar í NV-kjördæmi

Alþingiskosningar 2021 | 27. september 2021

Magnús ætlar að kæra kosningarnar í NV-kjördæmi

Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi, hefur ákveðið að kæra kosningarnar í Norðvesturkjördæmi til kjörbréfanefndar Alþingis og fara fram á svokallaða uppkosningu sem felur í sér að kosið yrði að nýju í Norðvesturkjördæmi. Kæran verður lögð fram formlega á næstu dögum. Eftir atvikum verður kæra einnig send til lögreglu.

Magnús ætlar að kæra kosningarnar í NV-kjördæmi

Alþingiskosningar 2021 | 27. september 2021

Magnús Davíð Norðdahl.
Magnús Davíð Norðdahl. Ljósmynd/Aðsend

Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi, hefur ákveðið að kæra kosningarnar í Norðvesturkjördæmi til kjörbréfanefndar Alþingis og fara fram á svokallaða uppkosningu sem felur í sér að kosið yrði að nýju í Norðvesturkjördæmi. Kæran verður lögð fram formlega á næstu dögum. Eftir atvikum verður kæra einnig send til lögreglu.

Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi, hefur ákveðið að kæra kosningarnar í Norðvesturkjördæmi til kjörbréfanefndar Alþingis og fara fram á svokallaða uppkosningu sem felur í sér að kosið yrði að nýju í Norðvesturkjördæmi. Kæran verður lögð fram formlega á næstu dögum. Eftir atvikum verður kæra einnig send til lögreglu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Magnúsi. 

Varsla og eftirlit ekki með fullnægjandi hætti

Hann segir ljóst að alvarlegir ágallar hafi verið á talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Kjörgögn hafi ekki verið innsigluð eftir lok talningar snemma morguns 26. september heldur skilin eftir á Hótel Borgarnesi í sal hótelsins þegar talningarfólk fór heim.

„Varsla og eftirlit á þeim tíma, sem leið frá lokum talningar og fram að endurtalningu, þegar starfsfólk mætti aftur liggur ekki fyrir með fullnægjandi hætti. Hótelið var opið og þar mátti sjá gesti þegar endurtalning fór fram. Hafi salnum verið læst var hann ekki innsiglaður og þá liggur ekki fyrir hver eða hverjir höfðu lykla að umræddum sal.

Þá hófst endurtalning atkvæða án þess að umboðsmönnum lista Pírata í Norðvesturkjördæmi væri gert viðvart. Formaður kjörstjórnar varð síðan ekki við kröfu umboðsmanna um að bíða með endurtalningu þar til umboðsmenn kæmu á staðinn,“ segir í tilkynningunni. 

Háalvarlegt mál

Þá segir, að framangreind atriði, hvert um sig og eins öll saman, séu að hans mati háalvarleg og til þess fallin að draga úr trúverðugleika talningarinnar, sama hvort litið sé til fyrri eða síðari talningarinnar, starfa yfirkjörstjórnar í heild og þar með trúverðugleika kosninganna sem fram fóru í kjördæminu.

„Ljóst er að breyting varð á fjölda ógildra og auðra seðla á milli fyrri og síðari talningar og sama á við um atkvæðafjölda einstakra framboða.

Svona vinnubrögð í lýðræðislegu ferli kosninga og talningar eru algjörlega óásættanleg.

Eina leiðin til að leysa úr þessu er að endurtaka kosningarnar í Norðvesturkjördæmi og tryggja gagnsæi og að farið sé eftir lögum og reglum. Það er sanngjörn og réttmæt krafa okkar frambjóðenda og ekki síst kjósenda í kjördæminu,“ segir enn fremur. 

mbl.is