Yfir 200 tilkynningar borist Lyfjastofnun

Kórónuveiran Covid-19 | 30. september 2021

Yfir 200 tilkynningar borist Lyfjastofnun

207 tilkynningar höfðu á þriðjudag borist Lyfjastofnun vegna gruns um alvarlega aukaverkun eftir bólusetningu gegn Covid-19.

Yfir 200 tilkynningar borist Lyfjastofnun

Kórónuveiran Covid-19 | 30. september 2021

Bólusetning í Laugardalshöll.
Bólusetning í Laugardalshöll. mbl.is/Eggert Jóhannesson

207 tilkynningar höfðu á þriðjudag borist Lyfjastofnun vegna gruns um alvarlega aukaverkun eftir bólusetningu gegn Covid-19.

207 tilkynningar höfðu á þriðjudag borist Lyfjastofnun vegna gruns um alvarlega aukaverkun eftir bólusetningu gegn Covid-19.

Þetta kemur fram á vef Lyfjastofnunar. 

Flestar tilkynningar hafa borist vegna bóluefnis Pfizer, eða 93 talsins.

  • 23 þeirra varða andlát. 18 andlát vörðuðu aldraða** einstaklinga, 15 þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Fjögur andlát vörðuðu eldri* einstaklinga, þrír þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Eitt andlátið varðaði einstakling á aldursbilinu 60-64 ára með staðfestan undirliggjandi sjúkdóm.
  • 47 tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af níu lífshættulegt ástand).
  • 16 tilkynningar teljast klínískt mikilvægar og þar með flokkaðar sem alvarlegar**.
  • Fjórar tilkynningar teljast alvarlegar, þar sem beðið er eftir viðbótar upplýsingum.
  • Þrjár tilkynningar varða fósturmiska.

Spikevax (Moderna):

29 alvarlegar tilkynningar hafa borist.

  • Ein tilkynning varðar andlát aldraðs** einstaklings, með staðfestan undirliggjandi sjúkdóm.
  • 22 tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af tvær lífshættulegt ástand).
  • Ein tilkynning varðar lífshættulegt ástand þar sem ekki kom til sjúkrahúsvistar.
  • Ein tilkynning telst klínískt mikilvæg og þar með flokkuð sem alvarleg****.
  • Ein tilkynning telst alvarleg, þar sem beðið er eftir viðbótar upplýsingum.
  • Þrjár tilkynningar varða fósturmiska.

Vaxzevria (AstraZeneca):

72 alvarlegar tilkynningar hafa borist.

  • Sex tilkynningar varða andlát; þrjú andlát varðar eldri*** einstaklinga, tveir þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Þrjár tilkynningar varða andlát einstaklinga á aldursbilinu 60-64 ára; Einn þeirra var með staðfestan undirliggjandi sjúkdóm.
  • 53 tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af 19 lífshættulegt ástand).
  • Tíu tilkynningar teljast klínískt mikilvægar og þar með flokkaðar sem alvarlegar****.
  • Tvær tilkynningar teljast alvarlegar, þar sem beðið er eftir viðbótar upplýsingum.
  • Ein tilkynning varðar fósturmiska.

Janssen:

13 alvarlegar tilkynningar hafa borist.

  • Ein tilkynning varðar andlát eldri*** einstaklings
  • Níu tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af tvær lífshættulegt ástand).
  • Ein tilkynning telst klínískt mikilvæg og þar með flokkuð sem alvarleg****.
  • Ein tilkynning telst alvarleg, þar sem beðið er eftir viðbótar upplýsingum.
  • Ein tilkynning varðar fósturmiska.

„Þegar tilkynningar berast Lyfjastofnun er ekki hægt að segja til um hvort um orsakasamhengi milli bólusetningar og tilkynntra tilvika sé að ræða. Skoðun á öllum tilkynningum fer eftir ferlum hefðbundins lyfjagátarkerfis Lyfjastofnunar. Lyfjastofnun óskar eftir nánari upplýsingum um tilkynnt tilvik þegar slíkar upplýsingar eru taldar geta varpað betra ljósi á tilvikin,” segir í tilkynningu Lyfjastofnunar.

mbl.is