Enn bætist í hóp smitaðra barna

Kórónuveiran Covid-19 | 10. október 2021

Enn bætist í hóp smitaðra barna

Alls hafa nú fjögur börn greinst smituð af kórónuveirunni á leikskólanum Reykjakoti í Mosfellsbæ. Fjórða smitið greindist í gær en barninu heilsast vel, samkvæmt pósti sem leikskólastjóri Reykjakots sendi foreldrum.

mbl.is/​Hari

Fyrsta smitið greindist fyrir um viku síðan og voru börn á deildinni þar sem smitið kom upp send í sóttkví í kjölfarið. 

Helstu einkenni sem hafa komið fram hjá börnunum sem smitast hafa eru háls­sær­indi, hósti, og niður­gang­ur. 

mbl.is