36 smit innanlands - 18 í sóttkví

Kórónuveiran Covid-19 | 12. október 2021

36 smit innanlands - 18 í sóttkví

Þrjátíu og sex kór­ónu­veiru­smit greind­ust inn­an­lands í sýna­töku í gær, sam­kvæmt upp­færðum töl­um á covid.is. Þar af voru 18 í sótt­kví við grein­ingu eða rúm 66 pró­sent og 9 greind­ust utan sótt­kví­ar.

36 smit innanlands - 18 í sóttkví

Kórónuveiran Covid-19 | 12. október 2021

Frá sýnatöku við Suðurlandsbraut.
Frá sýnatöku við Suðurlandsbraut. mbl.is/Odd

Þrjátíu og sex kór­ónu­veiru­smit greind­ust inn­an­lands í sýna­töku í gær, sam­kvæmt upp­færðum töl­um á covid.is. Þar af voru 18 í sótt­kví við grein­ingu eða rúm 66 pró­sent og 9 greind­ust utan sótt­kví­ar.

Þrjátíu og sex kór­ónu­veiru­smit greind­ust inn­an­lands í sýna­töku í gær, sam­kvæmt upp­færðum töl­um á covid.is. Þar af voru 18 í sótt­kví við grein­ingu eða rúm 66 pró­sent og 9 greind­ust utan sótt­kví­ar.

Af smituðum sem greind­ust síðastliðinn sól­ar­hring eru 8 full­bólu­sett­ir og 19 óbólu­sett­ir.

1.838 sýni voru tek­in í gær og er hlut­fall já­kvæðra sýna 6 pró­sent.

Alls eru nú 1.562 í sótt­kví, 387 í skimun­ar­sótt­kví og 451 í ein­angr­un. Í gær voru 1.469 í sótt­kví og 448 í ein­angr­un.

Fimm á sjúkrahúsi

25 greind­ust í ein­kenna­sýna­tök­um og tveir í sótt­kví­ar- og handa­hófs­sýna­tök­um 

Sami fjöldi er á sjúkra­húsi og gjör­gæslu og í gær með Covid-19, það er 5 á sjúkra­húsi og enginn á gjör­gæslu.

Einn greindist með Covid-19 við landa­mæra­skimun og var sá óbólusettur.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is