Flokkaskipti Birgis hafi ekki áhrif á viðræður

Alþingiskosningar 2021 | 12. október 2021

Þau Sigurður Ingi, formaður Framsóknarflokksins, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, telja hvorugt að skipti Birgis Þórarinssonar úr Miðflokknum yfir í Sjálfstæðisflokkinn hafi áhrif á stjórnarmyndunarviðræður flokkanna þriggja.

Sigurður Ingi, formaður Framsóknarflokksins og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Sigurður Ingi, formaður Framsóknarflokksins og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna. Ljósmynd/Samsett

Þau Sigurður Ingi, formaður Framsóknarflokksins, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, telja hvorugt að skipti Birgis Þórarinssonar úr Miðflokknum yfir í Sjálfstæðisflokkinn hafi áhrif á stjórnarmyndunarviðræður flokkanna þriggja.

Þau Sigurður Ingi, formaður Framsóknarflokksins, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, telja hvorugt að skipti Birgis Þórarinssonar úr Miðflokknum yfir í Sjálfstæðisflokkinn hafi áhrif á stjórnarmyndunarviðræður flokkanna þriggja.

Eftir skipti Birgis hefur Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn 17 þing­menn á Alþingi, Framsóknarflokkurinn hefur 13 þingmenn og VG hefur 8. Stjórn­ar­meiri­hlut­inn hef­ur því 38 þing­menn. 

Sigurður Ingi sagði við mbl.is að ríkisstjórnarfundi loknum í dag að flokkaskipti Birgis breyttu ekki neinu í hans huga hvað varðar viðræðurnar. Katrín Jakobsdóttir virðist vera sammála honum og segist ekki halda að skiptin breyti neinu.

„Sérkennileg tímasetning“

„Þetta er auðvitað mjög sérkennilegt þegar þingmaður sem er í framboði og nær kjöri fyrir einhvern flokk skiptir um flokk áður en þing er kallað saman,“ segir Katrín.

„Hann hefur lýst sinni hlið á því og hans félagar eru ekki sammála og það er ekki nokkur leið fyrir mig að leggja eitthvert mat á þetta, þar sem þetta auðvitað varðar ekki minn flokk en þetta er auðvitað sérkennileg tímasetning.“

mbl.is