Hér gefur að líta eina þá nýstárlegustu hugmynd sem sést hefur lengi. Brúnka + Rice Krispies er blanda sem getur ekki klikkað.
Uppskriftin er úr Kökubæklingi Nóa Síríus sem Linda Ben á veg og vanda að í ár.
Rice Krispies-brúnkur
- 120 g smjör
- 2 egg
- 300 g sykur
- 1 tsk. vanilludropar
- 100 g hveiti
- 30 g Síríus-kakóduft
- 90 g smjör
- 90 ml síróp
- 300 g Síríus-pralínsúkkulaði með saltkaramellufyllingu
Aðferð:
- U.þ.b. 120 g Rice Krispies eða þar til áferðin er orðin góð.
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C með undir- og yfirhita.
- Bræðið smjörið og leyfið því að kólna.
- Þeytið saman egg og sykur í nokkrar mínútur þar til blandan er orðin létt og ljós og myndar borða. Hellið smjörinu út í ásamt vanilludropum og hrærið á meðan.
- Sigtið hveiti og kakó út í og blandið öllu vel saman með sleikju.
- Hellið deiginu ofan í smurt 25x35 cm form og bakið í um 15 mínútur.
- Bræðið saman smjör og síróp, leyfið því að malla saman við vægan hita í örfáar mínútur. Slökkvið undir pottinum.
- Brjótið súkkulaðið út í pottinn og bræðið saman við hægt og rólega (ætti ekki að þurfa að kveikja undir pottinum aftur, best að sleppa því).
- Bætið Rice Krispies út í og blandið öllu varlega saman þar til allt Rice Krispies er þakið súkkulaði.
- Hellið Rice Krispies-blöndunni yfir brownie-kökuna. Skerið í litla bita, u.þ.b. 15 stk., þegar kakan hefur kólnað og Rice Krispies-toppurinn harðnað.