Kjötsúpuhátíðin á Skólavörðustíg haldin á laugardag

Innlend veitingahús | 19. október 2021

Kjötsúpuhátíðin á Skólavörðustíg haldin á laugardag

Íslensku kjötsúpunni verður gert hátt undir höfði með árlegum Kjötsúpudegi fyrsta vetrardag, laugardaginn 23. október næstkomandi og hefst klukkan 13.00 þar sem kjötsúpur í mismunandi búningi verða í boði fyrir gesti og gangandi.

Allir Íslendingar elska kjötsúpu, enda eiga allar íslenskar fjölskyldur sína uppáhalds uppskrift af kjötsúpunni sinni. Hún vekur góðar minningar, kallar fram bros og yljar hjartanu jafnt sem hún er bragðgóð, seðjandi og næringarrík. Kjötsúpudagurinn er haldinn af veitinga- og verslunarmönnum á Skólavörðustíg með stuðningi bænda.

Kjötsúpudagurinn var upprunalega haldinn árið 2002 þegar Ófeigur Björnsson í Ófeigi gullsmiðju og Jóhann Jónsson í Ostabúðinni leiddu saman hesta sína til að gera daginn að veruleika. Fyrsti vetrardagur varð fyrir valinu þar sem móðir Ófeigs hafði alltaf gert kjötsúpu þann dag. Segja má að Kjötsúpudagurinn sé ein af fyrstu sjálfssprottnu hátíðunum í miðbænum sem hefur svo sannarlega laðað að gesti og gangandi en árlega koma um tíu þúsund manns til að bragða á hinum ýmsu tegundum af íslenskri kjötsúpu. Mikil stemning er á Skólavörðustíg þennan dag og myndast langar raðir upp um allan stíg þar sem kjötsúpuþyrstir Íslendingar fá fría kjötsúpu eins og þeir geta í sig látið.

Hugmyndin kom upprunalega frá Ófeigi og Jóhanni G Jóhannssyni tónlistarmanni sem eru miklir vinir en þeim langaði að gera hátíð í miðbænum og sýna Íslendingum hvað væri í gangi niðri í bæ.

Síðan hafa verið haldnir fleiri dagar á Skólavörðustíg fyrir tilstilli Ófeigs og verslunarmanna á stígnum, blómadagur þar sem gefin eru blóm, grænmeti og ávextir og tónlistarmenn fengnir til að spila á stígnum. Einnig var haldinn beikondagurinn fyrir nokkrum árum sem breyttist í Reykjavík Food Festival og einnig er haldin þar Reykjavík Blues Festival í dymbilvikunni fyrir páska.

Eyþór Árnason
mbl.is