Þórólfur endurskoðar reglur um sóttkví

Kórónuveiran Covid-19 | 28. október 2021

Þórólfur endurskoðar reglur um sóttkví og einangrun

Sóttvarnalæknir hefur lokið endurskoðun á reglum um sóttkví og einangrun vegna Covid-19 og er niðurstaðan sú að stytta megi einangrun smitaðra og sóttkví þeirra sem hafa verið berskjaldaðir fyrir Covid, án þess að auka hættu á útbreiðslu veirunnar.

AFP

Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Þar segir, að heilbrigðisráðherra hafi gert breytingu á reglugerð nr. 1100/2021 þessa efnis, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Að uppfylltum skilyrðum getur tími í einangrun orðið skemmstur sjö dagar. Almenn krafa um dvöl í sóttkví styttist úr sjö dögum í fimm, að því gefnu að henni ljúki með neikvæðri niðurstöðu úr PCR-prófi. Ef einstaklingur undirgengst ekki PCR-próf til að ljúka sóttkví þarf hann að sæta henni í 14 daga. Reglugerðin tekur gildi frá og með 29. október og taka breyttar reglur einnig til þeirra sem þegar eru í sóttkví eða einangrun,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. 

Reglugerðinni fylgja leiðbeiningar sóttvarnalæknis fyrir almenning varðandi heimasóttkví og leiðbeiningar varðandi einangrun í heimahúsi.

Minnisblað sóttvarnalæknis. 

mbl.is