Pólverjar stöðva fjölda flóttamanna við landamæri

Á flótta | 9. nóvember 2021

Pólverjar stöðva fjölda flóttamanna við landamæri

Pólverjar segjast hafa komið veg fyrir að hundruð flóttamanna kæmust ólöglega til landsins frá Hvíta-Rússlandi í gær.

Pólverjar stöðva fjölda flóttamanna við landamæri

Á flótta | 9. nóvember 2021

Hermenn koma í veg fyrir að flóttamennirnir komist yfir landamærin.
Hermenn koma í veg fyrir að flóttamennirnir komist yfir landamærin. AFP

Pólverjar segjast hafa komið veg fyrir að hundruð flóttamanna kæmust ólöglega til landsins frá Hvíta-Rússlandi í gær.

Pólverjar segjast hafa komið veg fyrir að hundruð flóttamanna kæmust ólöglega til landsins frá Hvíta-Rússlandi í gær.

Evrópusambandið og bandarísk stjórnvöld hafa beðið stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi um að grípa inn í málið. 

Atlantshafsbandalagið gagnrýndi hvítrússnesk stjórnvöld einnig og sakaði þau um að nota flóttamenn sem pólitísk peð, á meðan ESB kallaði eftir nýjum refsiaðgerðum gegn Hvít-Rússum.

Börn í tjaldi við landamærin.
Börn í tjaldi við landamærin. AFP

ESB segir að Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, hafi reynt að ýta undir för flóttamanna yfir landamærin í hefndarskyni vegna núverandi refsiaðgerða ESB gegn landinu, sem hefur verið sakað um mannréttindabrot.

Pólland, sem er aðili bæði að ESB og NATO, hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir afstöðu sína í flóttamannamálum undanfarin ár.

AFP

„Sveitum innanríkisráðuneytisins og hermönnum tókst að koma í veg fyrir fyrstu stóru tilraunina til að komast yfir landamærin,” sagði í tísti pólska varnarmálaráðuneytisins.

„Flóttamenn hafa komið upp búðum í Kuznica. Þar er fylgst náið með þeim af hvítrússneskum aðilum.”

Í myndskeiði frá pólskum landamæravörðum á Twitter sést til flóttamanna nota vírklippur til að komast í gegnum landamæragirðingu.

Margir flóttamannanna sem reyna að komast til Póllands eru á flótta undan fátækt í ríkjum Mið-Austurlanda. Þeir segja Hvít-Rússa ekki leyfa þeim að komast aftur til borgarinnar Minsk og fljúga heim á meðan Pólverjar leyfi þeim ekki að komast yfir landamærin og sækja um hæli.

Óttast vopnuð átök 

Talsmaður pólsku ríkisstjórnarinnar, Piotr Muller, sagði blaðamönnum að 3.000 til 4.000 flóttamenn til viðbótar séu á leiðinni að landamærunum.

„Við reiknum með því að staðan við pólsku landmærin muni stigmagnast á næstunni þar sem vopn munu koma við sögu,” bætti hann við.

mbl.is